Viðskipti innlent

Framúrskarandi fyrirtæki hljóta viðurkenningu frá Creditinfo

Árni Páll Árnason veitir verðlaunin.
Árni Páll Árnason veitir verðlaunin.

Árni Páll Árnason, efnahags og viðskiptaráðherra, mun afhenda fimm fyrirtækjum viðurkenningu frá Creditinfo sem staðfestir að fyrirtækin flokkist sem framúrskarandi fyrirtæki. Athöfnin fer fram á Grand Hótel, 4.hæð, kl 12.15, fimmtudaginn 10. febrúar.

Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins. Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki.

Við valið voru síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja lagðir til grundvallar og þurftu fyrirtækin meðal annars að sýna fram á jákvæðan rekstrarhagnað og ársniðurstöðu. Sömuleiðis máttu eignir aldrei vera undir 100 milljónum og eiginfjárhlutfall aldrei minna en 25%. Einnig þurftu fyrirtækin að vera í flokki 1-3 í CIP áhættumati Creditinfo.

Creditinfo vill með þessari viðurkenningu vekja athygli á fyrirtækjum sem skara fram úr í viðskiptum og geta verið fyrirmynd annarra fyrirtækja sem vilja ná góðum árangri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×