Breskt fyrirtæki tekur yfir Orkustöðina á Húsavík Valur Grettisson skrifar 10. janúar 2011 11:01 Orkustöðin á Hrísmóum við Húsavík. Mynd / vefur Orkuveitu Húsavíkur.
Breska orkufyrirtækið Global Geothermal Ltd, hefur gert samkomulag við Orkuveitu Húsavíkur (OH) um samvinnu vegna viðgerðar og enduruppbyggingar Orkustöðvar OH á Hrísmóum við Húsavík. Kaupin eru háð samþykki nefndar um erlenda fjárfestingu en ákvörðun nefndarinnar liggur ekki fyrir. Global Geothermal er í meirihlutaeigu ástralska orkufyrirtækisins Wasabi Energy Ltd. Það einbeitir sér að raforkuframleiðslu úr jarðvarma. Ástæðan fyrir áhuga fyrirtækisins á stöðinni, sem er ónothæf í dag, er svokölluð Kalina-tækni sem fyrirtækið hefur einkaleyfi á. Stöðin var sú fyrsta sem notaðist við tæknina. Með Kalína-tækni er raforka framleidd með varma frá lághitasvæði. Með henni framleiðir orkustöðin rafmagn úr vatni sem er 121°C, áður en vatnið er nýtt fyrir hitaveitu bæjarins. Með tækninni er raforka framleidd með varma frá lághitasvæðinu á Hveravöllum í nágrenni Húsavíkur. Global Geothermal er kappsmál að raforkuframleiðsla hefjist að nýju í Orkustöðinni og á seinni hluta ársins 2010 fóru Global Geothermal og dótturfyrirtæki þess ítarlega yfir vélbúnað og ágalla stöðvarinnar. Að lokinni ítarlegri úttekt var það mat Global Geothermal að unnt væri að koma Orkustöðinni í fulla vinnslu á ný. Samningar hafa nú náðst um samvinnu fyrirtækjanna við viðgerð og endurbætur stöðvarinnar. Global Geothermal mun í raun yfirtaka stöðina á meðan viðgerð fer fram og mun viðgerðarkostnaður verða greiddur af Global Geothermal. OH mun leysa stöðina til sín aftur þegar sýnt hefur verið fram á rekstrarhæfni hennar samkvæmt tilkynningu. Þegar haft var samband við Orkuveitu Húsavíkur var ekki gefið upp hversu háa upphæð Orkuveitan þyrfti að greiða fyrir stöðina ef breska fyrirtækinu tekst að koma henni aftur á laggirnar. Framkvæmdastjóri OH, Guðrún Erla Jónsdóttir, tók svo skýrt fram að það er ekki verið að selja auðlindir með þessu samkomulagi.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira