Hrein erlend skuldastaða ekki betri síðan 1989 10. febrúar 2011 10:53
Hrein erlend skuldastaða þjóðarbúsins hefur ekki verið jafn hagfelld frá fyrstu mælingum Seðlabankans sem ná aftur til ársins 1989. Staðan í lok þriðja ársfjórðungs í fyrra var "einungis" neikvæð um 24% landsframleiðslu ef búið er að taka út áhrif föllnu bankanna. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka. Þar segir að hrein erlend skuldastaða er mikilvæg stærð þar sem hún gefur okkur ágætis vísbendingu um hvort þjóðin geti staðið undir erlendum skuldbindingum sínum eða ekki. „Neikvæðu fréttirnar eru hins vegar þær að staðan á eftir að breytast nokkuð á næstu misserum, væntanlega til hins verra. Sem dæmi mun eignarhlutur skilanefnda, skilgreindar í dag sem innlendur aðili, í nýju bönkunum á endanum færast að mestu leyti í hendur erlendra kröfuhafa sem hækkar erlendar skuldir þjóðarbúsins og verði Icesave að lögum mun nettó staðan versna sömuleiðis," segir í Markaðspunktunum „Jákvæðu fréttirnar eru þær að ef við bætum þessum tveimur þáttum við jöfnuna verður staðan ekki svo slæm í sögulegu ljósi. Að samþykkja Icesave hefur einungis um 3-4% neikvæð áhrif á hreinu skuldastöðuna, en stundum vill gleymast að eignir dragast frá skuldbindingunni, að því gefnu að fyriráætlanir samninganefndar Íslands nái u.þ.b. fram að ganga. Þegar hinsvegar eignarhlutur skilanefnda í nýju bönkunum færist í hendur erlendra kröfuhafa mun það veikja stöðuna um u.þ.b. 20% samkvæmt útreikningum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (89 milljarðar kr í Arion Banka, 100 milljarðar kr. í Íslandsbanka og helmingur í skuldabréfi nýja Landsbankans til þess gamla). Hreina erlenda staðan við útlönd verður því neikvæð í kringum 50-60% af landsframleiðslu ef báðar stærðirnar eru teknar með í reikninginn. Stærð sem er á pari við það sem tíðkaðist fyrir vöxt bankakerfisins." Í Markaðspunktunum segir að þó verði að taka þessum tölum með ákveðnum fyrirvara enda ríkir töluverð óvissa um vissa þætti einsog eignir og skuldir innlendra fyrirtækja erlendis. Í því samhengi skiptir t.d. gríðarlegu máli hvernig staða einstakra einkafyrirtækja er og má velta því fyrir sér hvort þjóðin væri betur sett án þeirra. Það myndi án efa fegra bókhaldið en deila má um ávinning af slíku fyrir þjóðarbúið, einkum þar sem einkafyrirtækin afla síns gjaldeyris sjálf.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira