Geta hagnast mikið á aflandskrónum 10. febrúar 2011 06:15 unnið í bankanum Erlendir fjárfestar gætu fengið háa ávöxtun á þriggja ára tímabili með því að kaupa aflandskrónur og fjárfesta í bréfum Íbúðalánasjóðs.Fréttablaðið/vilhelm
Erlendar fjármálastofnanir og fjárfestar geta fengið 66 prósenta ávöxtun á fjárfestingu sína í evrum talið með ákveðnum viðskiptagjörningum með aflandskrónur. Þetta á ekki við um þá erlendu fjárfesta sem festust inni með fjármagn sitt við innleiðingu gjaldeyrishafta fyrir rúmum tveimur árum heldur þá sem keyptu krónur eftir að höftin voru sett. „Þetta er ímyndað dæmi, en framkvæmanlegt. Erlendir aðilar mega bæði taka út afborgun og vaxtagreiðslur verðtryggðra bréfa útgefinna af Íbúðalánasjóði,“ segir Davíð Stefánsson, sérfræðingur hjá greiningu Arion banka. Greiningardeildin birti í gær dæmi þar sem gert er ráð fyrir að fjárfestir kaupi fyrst aflandskrónur fyrir 100 evrur og síðan fyrir sömu upphæð skuldabréfaflokk Íbúðalánasjóðs sem er á gjalddaga eftir þrjú ár. Til einföldunar er gert ráð fyrir því að viðskiptin eigi sér stað 16. mars næstkomandi og horft framhjá ávöxtunarkröfu skuldabréfaflokksins. Í hvert sinn sem greiðslur berast selur hann krónurnar á gjaldeyrismarkaði. Það mun skila þeim sem átti eina evru í upphafi 65 evrusenta hagnaði. Davíð bendir á að í raun liggi litlar upplýsingar fyrir um það hverjir eigi íbúðabréfin. Þá hafi erlendir fjárfestar nær aðallega keypt stutt óverðtryggð ríkisbréf sem eru á gjalddaga á næstu tveimur árum. „Við bendum aðeins á að við teljum að útlendingar geti keypt þessi bréf til að komast út úr landi og fengið fínan hagnað. Erlendir fjárfestar hafa heimild til að taka féð út, flokkurinn er til staðar og aflandskrónur til. En þeir hafa ekki verið að gera það í miklum mæli að við höldum,“ segir Davíð. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu Stöðvar 2 í vikunni kom fram að um 200 milljarðar aflandskróna liggi inni á svonefndum VOSTRO-reikningum erlendra bankastofnana. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira