Erlend verðbréfaeign lækkaði um 127 milljarða 10. febrúar 2011 15:28
Erlend verðbréfaeign innlendra aðila lækkaði um 127,3 milljarða kr. á milli áranna 2008 og 2009. Nam hún 914,8 milljörðum kr. í árslok 2009. Af þeirri upphæð voru 87% í hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum. Fjallað er um málið á vefsíðu Seðlabankans. Þar segir að alþjóðleg könnun á landaskiptingu erlendrar verðbréfaeignar hefur verið framkvæmd að frumkvæði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um nokkurra ára skeið. Meginmarkmið könnunarinnar er að bæta upplýsingar um verðbréfafjárfestingu milli landa. 75 lönd skiluðu gögnum í þessa könnun fyrir árið 2009. Á vefsíðunni er fjallað um helstu niðurstöður þessarar könnunar fyrir árið 2009 hvað Ísland varðar og einnig er gerður samanburður á þróun erlendrar verðbréfaeignar síðustu ár. Um 75% af erlendri verðbréfaeign innlendra aðila var í Bandaríkjunum, Bretlandi, Írlandi, Lúxemborg og Noregi. Lífeyrissjóðirnir áttu 57% af allri erlendri verðbréfaeign innlendra aðila. Þegar tölur áranna 2008 og 2009 eru skoðaðar er mikilvægt að hafa í huga að aðstæður í íslensku hagkerfi voru um margt óvenjulegar. Þannig hækkaði gengi erlendra gjaldmiðla t.d. um 80% árið 2008 og 7,6% árið 2009 gagnvart íslensku krónunni ásamt því að gripið var til gjaldeyrishafta seint á árinu 2008. Verðbréfaeign innlendra aðila náði hámarki í árslok 2007. Er það sambærilegt við alþjóðlega þróun því sama ár náði verðmæti verðbréfa í heiminum einnig hámarki. Erlend verðbréfaeign innlendra aðila í árslok 2007 var tæplega 2.000 milljarðar kr. Lækkun á gengi erlendra gjaldmiðla gagnvart íslensku krónunni nam 12,1% árið 2007 og því eru þessar hækkanir að mestu tilkomnar vegna flæðis fjármagns frá Íslandi í erlendar eignir. Erlend verðbréfaeign innlendra aðila lækkaði um 888 milljarða kr. á milli ársloka 2007 og 2008 eða um 60% af vergri landsframleiðslu ársins 2008. Helsta ástæða þessarar lækkunar var að erlend verðbréfaeign föllnu bankanna hafði verið veðsett að mestum hluta og rann því til erlendra kröfuhafa þegar samningar voru gerðir upp.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira