Gerðardómur klofinn í sektarmáli Símans 18. febrúar 2011 09:00 Ósáttir Samningurinn snerist um farsímaþjónustu um borð í skemmtiferðaskipum. Símamenn eru ósáttir við dóminn og munu gera það sem þeir geta til að hann verði ekki aðfararhæfur á Íslandi.
Íslendingurinn í þriggja manna gerðardómi skilaði sératkvæði í máli Símans og franska fyrirtækisins Seamobile. Hans niðurstaða var afgerandi: Engin rök stæðu til þess að dæma Símann til að greiða Seamobile 1,2 milljarða eins og hinir dómararnir töldu og varð niðurstaða dómsins. Málið snýst um samning sem Landssíminn gerði við fyrirtækið Geolink árið 2003 um farsímaþjónustu um borð í skemmtiferðaskipum og ferjum. Samkvæmt samningnum átti Geolink að koma búnaðinum upp og fá fimmtán prósent hagnaðarins í staðinn. Seamobile keypti síðar Geolink. Síminn er nú með samning um þjónustu við nærri áttatíu slík skip í gegnum dótturfyrirtæki sitt On-Waves. Á háannatíma nýta 100 þúsund farþegar þjónustuna. Árið 2006 ákvað Síminn að segja upp samningnum við Geolink. Ástæða uppsagnarinnar var tæknilegir örðugleikar, sem gerðu það meðal annars að verkum að erfitt var að greina á milli símnotkunar á hafi úti og í landi og rukka í samræmi við það. Þrátt fyrir þetta sendi Geolink ítrekað reikninga, byggða á áætlunum, sem Síminn mat allt of háa. Við það töldu forsvarsmenn Símans að yrði ekki unað og sögðu samningnum upp. Síminn samdi í kjölfarið við On-Waves, dótturfyrirtæki sitt. Síðan hafa staðið deilur um málið fyrir dómstólum, sem að lokum enduðu fyrir gerðardómi í samræmi við upprunalegan samning. Seamobile telur uppsögnina ólögmæta og að hún hafi valdið fyrirtækinu miklu tjóni. Í gerðardómnum sátu fulltrúar Símans og Seamobile og einn fulltrúi Alþjóðaviðskiptaráðsins. Fulltrúi Símans var hæstaréttarlögmaðurinn Stefán Geir Þórðarson. Í samningnum var kveðið á um að gerðardómurinn skyldi dæma eftir íslenskum lögum. Í vikunni ákvað dómurinn að Síminn skyldi greiða Seamobile 7,7 milljónir evra, jafnvirði 1,2 milljarða króna, í bætur vegna uppsagnarinnar. Stefán Geir var ósammála og skilaði sératkvæði. Niðurstaðan væri ekki í neinu samræmi við íslenska dómaframkvæmd. Síminn hyggst reyna að koma í veg fyrir það að dómurinn verði aðfararhæfur hér á landi, að sögn Andra Árnasonar, lögmanns Símans, enda sé talið að gerðardómurinn hafi farið langt út fyrir gerðarsamninginn í ákvörðun sinni.stigur@frettabladid.is
Mest lesið „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sjá meira