LV náði 3,4% raunávöxtun í fyrra 18. febrúar 2011 10:36
Nafnávöxtun Lífeyrissjóðs verslunarmanna (LV) nam 6,1% árið 2010 sem jafngildir 3,4% hreinni raunávöxtun. Þetta er betri ávöxtun en árið 2009, en þá nam raunávöxtun sjóðsins 1,1%. Ávöxtun LV árið 2010 er því nær jöfn þeirri ávöxtun og gert er ráð fyrir tryggingafræðilegu uppgjöri sjóðsins. Í tilkynningu segir að þessi jákvæða afkoma verður til þess að lífeyrisréttindi sjóðfélaga verða ekki skert, en þau eru að fullu verðtryggð. Eignir LV jukust um 27 milljarða kr. á árinu og voru þær 310 milljarðar kr. í árslok 2010 samanborið við 283 milljarða kr. árið áður. Allir eignaflokkar sjóðsins skiluðu jákvæðri ávöxtun árið 2010 og er áhættudreifing safnsins góð og samsetning þess traust. Þannig er um 30% af eignum sjóðsins í dreifðu safni erlendra verðbréfa, 28% í innlendum ríkistryggðum skuldabréfum, 12% í safni sjóðfélagalána, önnur skuldabréf eru samtals 13% af eignum og 13% í bankainnstæðum. Innlend hlutabréfaeign jókst nokkuð á árinu og nemur nú um 4% af eignum sjóðsins. Það styrkir eignasafn sjóðsins að þriðjungur eigna er í dreifðu safni erlendra verðbréfa. Við gildandi gjaldeyrishöft eru möguleikar takmarkaðir að nýta slíka áhættudreifingu með eins skilvirkum hætti og æskilegt er. Aðgerðir sem styðja við afnám gjaldeyrishafta í náinni framtíð er því hagsmunamál sjóðfélaga sjóðsins. Á síðasta ári varð sjóðurinn aðili að samkomulagi fjármálastofnana og lífeyrissjóða um úrræði fyrir skuldsett heimili og einstaklinga sem er mikilvægur liður í að koma til móts við skuldsett heimili og um leið að styrkja grundvöll lánasafnsins til lengri tíma litið. Færð hefur verið sérstök varúðarfærsla vegna sjóðfélagalána. Virkir sjóðfélagar í LV eru rúmlega 32 þúsund en 47 þúsund sjóðfélagar greiða árlega iðgjöld til sjóðsins sem nema um 16 milljörðum kr. Um tíu þúsund sjóðfélagar fengu greiddan lífeyri frá LV á síðasta ári, alls 6,8 milljarða kr. Lífeyrissjóður verslunarmanna er mikilvægur í íslensku samfélagi því alls eiga um 128 þúsund sjóðfélaga réttindi í sjóðnum.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira