Arion banki semur við Þorstein 20. janúar 2011 08:11 Þorsteinn M. Jónsson
Arion banki hefur gert samkomulag við Þorstein M. Jónsson og félög sem tengjast honum um uppgjör skulda. Meðal þessara félaga er Vífilfell hf. sem fer undir nýtt eignarhald. Gerir samkomulagið ráð fyrir fullum endurheimtum Arion banka, en fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá þessu á laugardaginn sl. Í tilkynningu segir að grundvöllur samkomulagsins er sala eignarhaldsfélaga í eigu Þorsteins, Sólstafa og Neanu, á öllu hlutafé í Vífilfelli. Nýr eigandi Vífilfells er spænski drykkjarvöruframleiðandinn Cobega. Kaupverð er trúnaðarmál en greiðslan kemur að öllu leyti til lækkunar á skuldum eignarhaldsfélaga Þorsteins við Arion banka. Búið er að skrifa undir kaupsamning en eftir stendur að ganga frá ákveðnum fyrirvörum sem tilgreindir eru í kaupsamningi. Reiknað er með að því verði lokið í febrúar. Arion banki mun einnig fá í sinn hlut væntanlegt söluandvirði og aðrar greiðslur vegna hlutar Vífilfells í hollenska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco. Þar til Refresco hefur verið selt mun Þorsteinn sitja í stjórn félagsins. Fyrir fjárhagslega endurskipulagningu voru heildarskuldir Sólstafa og Neanu við Arion banka um 6,4 milljarðar króna og heildarskuldir Vífilfells við bankann voru um 4,5 milljarðar króna. Samkomulagið nú felur í sér fullnaðaruppgjör á skuldum Sólstafa og Neanu við Arion banka og að heildarskuldir Vífilfells verði um 2 milljarðar króna og þar af 1,4 milljarðar við Arion banka. Þorsteinn á einnig hlut í fjárfestingafélaginu Materia Invest og er í persónulegri ábyrgð fyrir 240 milljónum af skuldum félagsins við Arion banka. Hluti af samkomulaginu nú er uppgjör þessara persónulegu ábyrgða.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira