Rúm 20% mannaflans á bóta- eða veikindagreiðslum 10. febrúar 2011 14:44
Fjöldi þeirra sem samtals þáðu bóta- eða veikindalaunagreiðslur var tæplega 35.000 manns í desember 2010, eða sem svarar til 21,7% af mannafla. Þetta kemur fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að í árslok 2010 má ætla að örorkulífeyrisþegar hafi verið um 15.600 út frá tölum Tryggingastofnunar en þær nýjustu eru frá þriðja ársfjórðungi 2010. Örorkulífeyrisþegar sem úrskurðaðir hafa verið með 75% örorku voru um 14.600 og endurhæfingarlífeyrisþegar um 1.000. Fjöldi örorkulífeyrisþega var nánast óbreyttur frá árslokum 2009 en endurhæfingarlífeyrisþegum fækkaði umtalsvert milli ára, eða um 20%. Hlutfall örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega af mannafla (vinnuafli, samtölu starfandi manna og atvinnulausra), eins og Vinnumálastofnun áætlar hann, var 9,8% í desember 2010. Þótt fjöldi lífeyrisþega hafi nánast staðið í stað þá hækkaði hlutfall þeirra af mannafla úr 9,4% í 9,8% vegna fækkunar á vinnumarkaði, en Vinnumálastofnun áætlar að mannafli (umreiknaður í full störf) hafi verið um 160.000 í desember 2010 samanborið við tæp 168.000 í árslok 2009. Að jafnaði voru 12.745 atvinnulausir í desember 2010 sem svaraði til 8,0% af mannafla. Samanlagður fjöldi atvinnulausra og örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega var því 28.345 eða sem svarar 17,7% af mannafla. Sé þeim bætt við sem voru fjarverandi vegna veikinda, sem svarað hefur til u.þ.b. 4% af mannafla að jafnaði undanfarin ár, og fjöldi þeirra því 6.400, þá nam fjöldi þeirra sem samtals þáðu bóta- eða veikindalaunagreiðslur tæplega 35.000 manns í desember 2010, eða sem svarar til 21,7% af mannafla. Áætla má því að mannaflinn hafi skilað vinnu sem svarar til 141.000 fullra starfa í desember 2010 og er því hlutfall þeirra 35.000 sem þáðu bóta- eða veikindalaunagreiðslur hátt af þeim sem skiluðu vinnuframlagi mjög hátt, eða 25%.
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira