Nýir lögmenn til liðs við Juris 12. janúar 2011 09:25
Juris lögmannsstofa, lögmannsstofan Jónsson & Harðarson ehf. og Páll Ásgrímsson hdl. hafa ákveðið að sameina krafta sína undir merkjum Juris. Eftir þetta verða eigendur Juris þeir Andri Árnason, Halldór Jónsson, Lárus L. Blöndal, Páll Ásgrímsson, Sigurbjörn Magnússon, Stefán A. Svensson og Vífill Harðarson. Juris mun á næstu vikum flytja í nýtt og glæsilegt húsnæði að Borgartúni 26 í Reykjavík. „Tilkoma þremenninganna í eigendahóp okkar er sérstakt ánægjuefni. Hér eru á ferðinni afar hæfir og reynslumiklir lögmenn sem koma með aukna breidd inn í okkar rekstur sem gerir Juris kleift að bjóða upp á enn víðtækari þjónustu og ráðgjöf, ekki síst sérhæfðari fyrirtækjaráðgjöf," segir Sigurbjörn Magnússon, hrl. og einn eigenda Juris í tilkynningu um málið. Stofan er aðili að Globalaw, alþjóðlegu samstarfsneti lögmannsstofa en aðilar samstarfsins eru allir sérhæfðir á sviði viðskipta- og fyrirtækjalögfræði og hafa víðtæka alþjóðlega reynslu á því sviði. Við stækkunina verða starfsmenn stofunnar í kringum 25 talsins. Halldór Jónsson hrl. lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1994 og varð hæstaréttarlögmaður árið 2003. Hann var sjálfstætt starfandi lögmaður frá 1997-2006, þar af hjá KPMG Lögmönnum ehf. og síðar sem einn eigenda Lex lögmannsstofu frá 1999 en þar áður hjá yfirskattanefnd og hjá umboðsmanni Alþingis. Á árunum 2006-2009 gegndi hann starfi aðallögfræðings Landsbankans í Lúxemborg en hefur frá apríl 2009 rekið lögmannsstofuna Jónsson & Harðarson þar sem hann hefur sérhæft sig í fyrirtækjaráðgjöf, einkum banka- og fjármálastarfsemi auk skattaréttar. Páll Ásgrímsson hdl. lauk embættisprófi í lögum frá háskóla Íslands árið 1990 og meistaragráðu í Evrópurétti frá London School of Economics 1991. Hann öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 1995. Hann hefur verið framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Skipta og þar á undan Símans hf. frá árinu 1999. Áður starfaði hann m.a. hjá lagadeild eftirlitsstofnunar EFTA, sem yfirlögfræðingur Samkeppnisstofnunar og í viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu. Þá hefur Páll setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja. Hann hefur því langa reynslu af fyrirtækjarekstri, alþjóðasamskiptum og lögfræðistörfum, einkum á sviði félaga- og samkeppnisréttar. Vífill Harðarson hdl. lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2002 og meistaraprófi í löggjöf á alþjóðlegum fjármálamörkuðum frá King's College í London 2010. Hann öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður 2003 og lauk prófi í verðbréfaviðskiptum 2005. Hann starfaði áður m.a. hjá Lex lögmannsstofu, Glitni banka og Novator en hefur rekið lögmannsstofuna Jónsson & Harðarson með Halldóri Jónssyni frá því í maí á síðasta ári þar sem hann hefur aðallega sinnt fyrirtækjaráðgjöf, einkum varðandi banka- og fjármálastarfsemi og fjármögnun.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira