Æskilegt að kljúfa sundur viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi Hafsteinn G. Hauksson skrifar 3. febrúar 2011 19:34 Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður. Mynd/ Stefán.
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir hagsmunaárekstra hugsanlega vegna samþættingar viðskipta- og fjárfestingarbankastarsfemi, líkt og við stofnfjárútboð Byrs Sparisjóðs. Hann segir æskilegast að kljúfa slíka starfsemi í sundur. Glitnir banki tók að sér ráðgjöf og sölutryggingu við útboð á nýju stofnfé í Byr sparisjóði og Sparisjóði Norðlendinga undir árslok 2007, og gegndi þarmeð hlutverki fjárfestingabanka. Á sama tíma lánaði hann stofnfjáreigendum fé til kaupa á nýju stofnfé með veði í bréfunum, og gegndi þar með um leið hlutverki viðskiptabanka í ferlinu. Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að æskilegt sé að kljúfa þessi hlutverk banka í sundur, þar sem áhættusækni í fjárfestingabankastarfsemi sé yfirleitt meiri en við viðskiptabankastarfsemi. „Jafnframt geta komið fram hagsmunaárekstrar, líkt og í þessu sérstaka tilfelli, þar sem fjárfestingabankahliðin er að reyna að safna fjármunum fyrir viðskiptavin sinn, sem er þá einhver banki. Á meðan er viðskiptabankahliðin að lána inn í kaupin, svo menn sitja þá við tvær hliðar borðsins," segir Tryggvi. Hann segir hugsanlegt að slíkir hagsmunaárekstrar hafi átt sér stað við stofnfjárútboðið. Hann vill þó ekki fullyrða um það, en segir að almennt geti verið óheppilegt að fjárfestingabankar og viðskiptabankar starfi undir sama þaki. Í eigandastefnu ríkisins frá árinu 2009 kemur fram að fjármálastofnanir sem ríkið á hlut á skuli halda fjárfestingabankastarfsemi skýrt afmarkaðri frá grunnstarfsemi. Hins vegar var ekkert kveðið á um fullan aðskilnað viðskipta- og fjárfestingabanka við endurskoðun á lögum um fjármálastofnanir síðasta sumar, en Tryggvi hefði talið það æskilegt. „Eigendastefnan sem var unnin á vegum fjármálaráðuneytisins endurspeglaði þetta að nokkru, á meðan lög um fjármálafyrirtæki sem unnin voru í viðskiptaráðuneytinu endurspegluðu þetta ekki. Það hefði kannski mátt vera meiri samskipti þarna á milli," segir Tryggvi. Hann segir Sjálfstæðismenn munu beita sér fyrir frekari endurskoðun á lögum um fjármálafyrirtæki. Þar verði þó ekki einblínt á aðskilnað viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi, heldur þurfi að skoða málið í stærra samhengi með reynslu annarra þjóða og alþjóðastofnana að leiðarljósi.
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fleiri fréttir Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Sjá meira