Sjúkraliðar og ælupokar í boði 10. nóvember 2011 12:30 Tom Six verður með spurt og svarað-sýningu í Háskólabíói í kvöld en þá verður kvikmynd hans, The Human Centipede 2, forsýnd.
Hollenski kvikmyndagerðamaðurinn Tom Six er væntanlegur hingað til lands í dag ásamt systur sinni en hann verður með spurt og svarað-sýningu í Háskólabíói í kvöld þegar kvikmynd hans, The Human Centipede 2, verður forsýnd. Myndin er stranglega bönnuð innan átján ára og verða dyraverðir til taks á sýningunni. Þeir verða ekki eina varúðarráðstöfunin því Ísleifur B. Þórhallsson, sem hefur veg og vanda af komu Six hingað til lands, hefur þegar tryggt að þrjú hundruð ælupokar verði til taks. „Og svo verða alvöru sjúkraliðar með súrefni og börur á reiðum höndum ef einhverjum fer að líða verulega illa.“ Myndin er feikilega umdeild, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Breska kvikmyndaeftirlitið ákvað meðal annars að banna hana alfarið í Bretlandi og varð sú ákvörðun tilefni mikilla ritdeilna. Að endingu ákváðu bresk yfirvöld að hleypa henni í gegn. Myndin hefur fengið misjafna dóma en kvikmyndatímaritið Empire gaf henni meðal annars þrjár stjörnur og fína dóma og Entertainment Weekly gaf henni lofsamlega umsögn. Ísleifur segir að Six og systir hans séu ákaflega viðkunnanlegt fólk sem hlakki mikið til heimsóknarinnar til Íslands. „Six er alveg hrikalega flughræddur og hann leggur ekkert á sig svona ferðalög nema hann sé mjög spenntur,“ segir Ísleifur en þau verða hérna yfir helgina og ætla sér að kíkja út á lífið. „Og kannski kíkja á Kevin Smith,“ segir Ísleifur, en bandaríski kvikmyndaleikstjórinn verður með uppistand í Hörpunni á föstudagskvöld. -fgg
Mest lesið Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hrákapoka um höfuð hans Innlent „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“ Innlent Rífa íþróttahúsið Innlent Dæmi um að ökumenn slökkvi á skynjara sem bjargaði lífi hans Innlent Heilsaði upp á meint fórnarlömb sín Innlent Tæplega fimmtíu leigubílstjórar eiga von á kæru Innlent McKellen heill á húfi Erlent Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Erlent Gagnrýnir viðbúnað lögreglu og takmarkað aðgengi almennings að Austurvelli Innlent Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkasamtökin Norðurvígi og raunveruleg skoðun túrista Öryggisbúnaður ekki til staðar í tugum leigubíla Fyrsti rampurinn vígður á Vestfjörðum í Römpum upp Ísland Heilsaði upp á meint fórnarlömb sín Tæplega fimmtíu leigubílstjórar eiga von á kæru Fjármálaráðherra hafi slátrað eigin samgönguáætlun Dæmi um að ökumenn slökkvi á skynjara sem bjargaði lífi hans Eldgosið stöðugt og gosmengun til norðurs Íslenskir unglingar undir pari í skapandi hugsun hins daglega lífs Aukin bjartsýni vegna hitaveituholunnar á Ísafirði Gagnrýnir viðbúnað lögreglu og takmarkað aðgengi almennings að Austurvelli Vantrauststillaga lögð fram Sá sæng sína upp reidda „Þetta setur okkur í svolítið einkennilega stöðu“ Stjórnarflokkarnir ekki enn komnir með forgangslista mála Umdeild öryggisgæsla á Austurvelli og deilt um bílastæði á flugvöllum Bein útsending: Kynna aðgerðir gegn gullhúðun Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hrákapoka um höfuð hans Án rafmagns í tuttugu mínútur „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“ Rífa íþróttahúsið Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Brutust inn en gripu í tómt Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Kringlan lokuð til fimmtudags Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Sjá meira