Lýsing hundsar fyrirmæli Neytendastofu Breki Logason skrifar 5. janúar 2011 18:30
Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing ætlar að innheimta verðbætur á óverðtryggðum lánum, þrátt fyrir úrskurði Neytendastofu og áfrýjunarnefndar neytendamála um að þeim hafi verið það óheimilt. Neytendastofa hefur fá úrræði í höndunum, en getur þó beitt sektum. Breki Logason. Þann 20.desember staðfesti áfýjunarnefnd neytendamála úrskurð neytendastofu um að Lýsingu hefði verið óheimilt að innheimta verðbætur á óverðtryggðum lánum. Um er að ræða bílasamning sem gerður var við einstakling, þar sem helmingur lánsfjárhæðar var tengdur erlendum myntum en hinn helmingurinn var í íslenskum krónum. Í úrskurðinum segir meðal annars að stofnunin telji Lýsingu þurfa að bera ábyrgð á því að félagið hafi fyrir mistök ekki greint frá því að á samningnum væri íslenskur hluti lánsins verðtryggður. Lýsing sendi síðan frá sér tilkynningu vegna málsins í dag. Þar segir að þar sem hvorki áfýjunarnefndin né neytendastofa hafi tekið afstöðu til þess hvernig haga beri uppgjöri eða hvernig túlka beri þann samning sem fjallað var um, telji Lýsing rétt að reikna hann út á þann hátt sem þeir síðan útlista í tilkynningunni. Þar kemur síðan fram að sá hluti samningsins sem sé í íslenskum krónum verði óbreyttur og reiknast með verðtryggingu sem miðuð sé við vísitölu neysluverðs og vextir miðist við verðtryggða vexti samkvæmt gjaldskrá Lýsingar á hverjum tíma. Þórunn Anna Árnadóttir sviðsstjóri neytendaréttarsviðs hjá Neytendastofu segir stofnunina ekki hafa neina heimild til að taka afstöðu til þess hvernig uppgjöri skuli hagað. Það verði að leysa á einkaréttarlegum grunni en stofnunin geti þó beitt sektarheimildum sé ekki farið að ákvörðun stofnunarinnar. Hún sagði ennfremur að í fljótu bragði virtist Lýsing ætla að innheimta fyrrgreindar verðbætur með sömu röksemdum og var beitt þegar Neytendastofa og áfrýjunarnefndin fjölluðu um málið. Þær röksemdir hafi hinsvegar ekki verið taldar fullnægjandi og því sé undarlegt að menn ætli að beita þeim í þriðja skiptið. Hún segir málið verða skoðað frekar á næstu dögum. Forsvarsmenn Lýsingar vísuðu í fyrrgreinda tilkynningu þegar fréttastofa leitaði viðbragða vegna málsins í dag, en hana er hægt að nálgast á heimasíðu fyrirtækisins.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Fleiri fréttir Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Sjá meira