Vilhjálmur Egilsson: Samfylkingin er ómálefnaleg - ekki við 30. janúar 2011 19:12
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki ómálefnalegt að gera kröfu um sátt um framtíð fiskveiðistjórnunarkerfisins í kjaraviðræðum. Hann segir ómálefnalegt hjá Samfylkingunni að láta eins og ekkert atvinnuleysi sé í landinu meðan 14 þúsund eru án atvinnu. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, gagnrýndi Samtök atvinnulífsins harkalega á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær og sagði að grímulaus valdaklíka LÍÚ hefði þvingað samtökin til að taka kjarasamninga í landinu í gíslingu. Hún sagði að Samtök atvinnulífsins yrðu að snúa aftur að samningaborðinu. Aðspurður hvort um málefnalega afstöðu sé að ræða segir Vilhjálmur: „Það er mjög málefnalegt vegna þess að við erum að tala um málefni. Fyrst og fremst. Við erum að tala um sátt, við erum að tala um samningaleiðina, við erum að tala um að við Íslendingar getum horft fram á veginn og náð atvinnuleysinu niður." Vilhjálmur segir ekki málefnalegt hjá Samfylkingunni að senda frá sér ályktun um atvinnumál án þess að minnast einu orði á atvinnuleysið. „Þegar við við erum með 14 þúsund manns atvinnulausa eða 8% af vinnuaflinu." Spurðu hvað felist í þeirri sátt sem hann talar fyrir svarar Vilhjálmur: „Sáttin felst í því að útfæra samningaleiðina sem að allir sem einhverju máli skipta voru sammála um að fara í september síðastliðnum. Það er búið að ná samkomulagi um grundvallarbreytingu á fiskveiðistjórnarkerfinu sem felst í svokallaðri samningaleið þar sem forræði ríkissins er algerlega viðurkennt. Þjóðin á auðlindina. Það er engin að deila um það en spurningin er hins vegar um það hvernig eigi að útfæra nýtingu á þessari auðlind." Vilhjálmur segir að það myndi koma sér verulega á óvart ef að ríkisstjórnin færi einhverja aðra leið en samningaleiðina.
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira