Sérstakur: Gögnin frá Lúx ættu að skila sér í febrúar Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. janúar 2011 12:21 Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Sérstakur saksóknari segist eiga von á því að fá gögn úr Banque Havilland bankanum í Lúxemborg í febrúar þegar niðurstaða hæstaréttar í Lúxemborg á að liggja fyrir. Embættið telur gögnin hafa grundvallarþýðingu fyrir rannsókn á málefnum Kaupþings. Allir þræðir liggja til Lúxemborgar Í febrúar síðastliðnum framkvæmdi lögreglan í Lúxemborg, að beiðni sérstaks saksóknara á Íslandi, húsleit hjá Banque Havilland bankanum sem starfaði áður undir heiti Kaupþings í Lúxemborg. Bankinn, sem er í eigu Rowland-fjölskyldunnar bresku, og nítján viðskiptavinir hans kærðu afhendingu gagnanna til Íslands og féll úrskurður þess efnis sérstökum saksóknara í vil hinn 30. nóvember. „Sú niðurstaða var kærð til Hæstaréttar og við eigum von á því, eftir því sem við komumst næst, að það ætti að liggja niðurstaða fyrir í því kærumáli í lok febrúar, að öllum líkindum." segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Hvaða þýðingu hafa þessi gögn fyrir rannsókn ykkar á málefnum Kaupþings? „Við teljum að þarna hafi legið töluvert mikið af upplýsingum um það sem í raun og veru gerðist. Þess vegna var farið fram á það að þessi leit yrði framkvæmd. En við höfum ekki séð gögnin ennþá og getum því ekki fullyrt um hvaða upplýsingar þau muni veita fyrir rannsóknirnar," segir Ólafur Þór. Embætti hans hefur að undanförnu verið að bæta við sig starfsfólki. Tólf voru ráðnir í desember síðastliðnum og hefur embættið nú að sögn Ólafs Þórs ráðið sjötíu af þeim áttatíu starfsmönnum sem embættið ætlaði að ráða til að styrkja rannsóknarteymi sín. Embættið hefur nú um áttatíu opin mál til rannsóknar sem snerta alla stóru föllnu bankana þrjá og fleiri fjármálafyrirtæki sem störfuðu hér á landi fyrir hrun.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira