Slitastjórn Landsbankans óskar skýringa hjá bankaráði 9. febrúar 2011 13:04
Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans hefur sent öllum bankaráðsmönnum bankans og tveimur bankastjórum fyrir hrun, að Björgólfi Guðmundssyni undanteknum, bréf þar sem óskað er skýringa þeirra á ýmsum atriðum og meintu misferli í þeirra í starfi sem upp hafa komið við rannsóknir á málefnum bankans. Páll Benediktsson talsmaður skilanefndar staðfestir í samtali við visir.is að bréf hafi verið sent meðlimum bankaráðsins og bankastjórunum Halldóri J. Kristjánssyni og Sigurjóni Þ. Árnasyni en þeir sátu flesta flundi bankaráðsins. Í bankaráðinu sátu Björgólfur Guðmundsson, Andri Sveinsson, Kjartan Gunnarsson, Svafa Grönfeldt og Þorgeir Baldursson. Björgólfur Guðmundsson formaður bankaráðsins fékk ekki bréf frá slitastjórninni þar sem hann hefur ekki lengur umráð yfir eigin fjármálum, þ.e. hann er í gjaldþrotameðferð. Slitastjórn hefur aftur á mót lýst kröfum í þrotabú hans. Páll segir að í bréfinu sé óskað viðbragða og andmæla af hálfu viðtakenda um ýmis atriði sem rannsóknir hafa leitt í ljós. Hann vill ekki tjá sig nánar um málið né ræða upphæðir. „Framhald þessa máls verður svo ákveðið eftir að okkur hafa borist svör við bréfinu," segir Páll. Þess má geta að í desember s.l. krafði slitastjórn Landsbankans þá Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson hvorn um sig um 37 milljarða króna vegna meintrar vanrækslu í tveimur viðskiptasamningum sem báðir tengjast félögum í eigu Björgólfsfeðga. Annað málið snertir tryggingar vegna vanhalda á innheimtu ábyrgðar vegna láns til Grettis en hitt snertir lán til Straums. Þá sagði lögmaður Sigurjóns að það væri óeðlilegt að bankastjórar Landsbankans væru krafðir um 37 milljarða króna af slitastjórn bankns vegna verka annarra meðan engar kröfur eru gerðar á hendur bankaráðsmanna.
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira