Viðskipti innlent

Velta debetkorta jókst um 1,4% milli ára í desember

Heildarvelta debetkorta í desember síðastliðnum var 40,2 milljarðar kr. og er þetta 1,4% aukning miðað við desember árið áður en 31,1% aukning miðað við nóvember síðastliðnum.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að heildarvelta kreditkorta í desember síðastliðnum var 26,5 milljarðar kr. og er þetta 13,2% aukning miðað við desember árið áður en 3,7% aukning miðað við nóvember síðastliðinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×