Áætlaður kostnaður við laugarnar 320 milljónir 2. september 2011 05:00 Sundhöll Reykjavíkur Forseti borgarráðs segir að margar sundlaugar borgarinnar, þar á meðal Sundhöll Reykjavíkur, þarfnist mikilla viðhaldsaðgerða. fréttablaðið/gva
Framkvæmdir við endurgerð sundlauganna í Reykjavík eru hafnar og er áætlaður kostnaður nú kominn upp í 320 milljónir króna eftir endurskoðaða fjárhagsáætlun frá 30. júní. Í apríl síðastliðnum kom fram að áætlaður kostnaður yrði um 275 milljónir króna, en þó var gert ráð fyrir 500 milljónum í framkvæmdirnar í upphaflegri fjárhagsáætlun 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Unnið er við nær allar sundlaugar í Reykjavík og var verkefnastaðan kynnt fyrir borgarráði í gær. Dagur B. Eggertsson, forseti borgarráðs, segir ástæðu kostnaðarbreytinganna þá að nú sé búið að fullhanna framkvæmdaáætlunina og því liggi hinar endanlegu viðmiðunartölur fyrir. „Við ætlum að leggja áherslu á það sem er mannaflsfrekt í framkvæmda- og atvinnumálum,“ segir Dagur. „Sundlaugarnar okkar eru algengustu og vinsælustu ferðamannastaðirnir í borginni og eru í gríðarlega mikilli notkun allt árið um kring. Því er afar mikilvægt að halda þeim við þannig að við séum stolt af þeim.“ Meðal framkvæmda verða upphitaðar gönguleiðir við Laugardalslaug, möguleg uppsetning líkamsræktaraðstöðu við Breiðholtslaug og eimbað og leiktæki á Ylströndinni í Nauthólsvík. - sv
Fréttir Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira