Íslendingar henda 10 kílóum af gulli á ári 4. janúar 2011 09:52
Auðvelt er að reikna út að Íslendingar hendi um 10 kílóum af gulli á hverju ári. Þetta gerist þegar landsmenn endurnýja farsíma sína. Andvirði þessa gulls, miðað við heimsmarkaðsverð, er um 57 milljónir kr. Í frétt á vefsíðunni e24.no undir fyrirsögninni „Grafa eftir gulli í gömlum farsímum" kemur fram að eftir töluverðu sé að slægjast í því sem kallað er gullgröftur í úthverfum. Við hefðbundinn gullgröft er talið gott að fá 5 grömm af gulli út úr hverju tonni af gullgrýti. Í hverju tonni af gömlum farsímum eru hinsvegar allt að 300 grömm af gulli. Þetta kemur fram í bók eftir prófessorinn Svein Stölen sem gefin verður út í mars n.k. Í Noregi seljast um 2 milljónir farsíma á hverju ári og því auðvelt að reikna út að þeir innihalda um 60 kíló af gulli. Er þá miðað við að hver farsími sé 100 grömm að þyngd. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni voru áskriftir að farsímum á Íslandi tæplega 330.000 á árinu 2009. Þessi fjöldi var kominn yfir 300.000 áskriftir þegar árið 2006. Þannig er auðvelt að reikna út að Íslendingar leggi eða hendi rúmlega 300.000 farsímum á ári hverju en í þeim eru, miðað við úteikninga Svein Stölen, um 10 kíló af gulli. Í bók Stölen kemur þar að auki fram að fyrir utan gullið er að finna marga dýra snefilmálma eins og indium og ruthenium í gömlum farsímum.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Sjá meira