Jólin

Leika bókatitla á aðfangadagskvöld

Það er eins gott að vera vel að sér um bókatitla ef maður ætlar að fá að opna pakkana sína á heimili Aldísar Guðmundsdóttur.
Það er eins gott að vera vel að sér um bókatitla ef maður ætlar að fá að opna pakkana sína á heimili Aldísar Guðmundsdóttur.
Á heimili Aldísar Guðmundsdóttur, sálfæðikennara við MH, hefur sá siður komist á að leika Actionary við opnun pakkanna á aðfangadagskvöld. Sá getspakasti má svo opna einn pakka.

Leikurinn fer þannig fram að einn er valinn til að byrja að leika og hinir reyna að geta upp á því hvað hann er að túlka. Sá sem getur rétt upp á því má opna einn pakka, síðan á hann að leika fyrir hina og svo koll af kolli.

En má leika hvað sem er?

„Yfirleitt höfum við haldið okkur við bókatitla, en þar sem einn ungur maður í fjölskyldunni er betur að sér um kvikmyndir en bækur höfum við leyft kvikmyndatitla líka,“ segir Aldís.

Hvernig kom þessi siður til?

„Ég er ekki alveg með það á hreinu,“ viðurkennir Aldís en bætir við að fjölskyldan hafi kynnst Actionary hjá vini í Bandaríkjunum árið 1993. Hún hafi samt ekki fyrr en 2000 farið að leika hann við pakkaopnunina á aðfangadagskvöld.

Tekur ekki hálfa nóttina að opna pakkana með þessu móti?

„Nei, yfir­leitt tekur þetta rúma tvo tíma. Ein jólin fékk reyndar áður­nefndur ungur maður 80 pakka svo hann mátti opna nokkra pakka án þess að leikurinn kæmi til. Það hefur alltaf verið fín stemning í kringum þetta, mikið hlegið og mikið fjör.“- fsb


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×