Viðskipti innlent

AGS vill að gjaldeyrishöftunum verði aflétt af varkárni

Ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) fær einhverju um það ráðið mun aflétting gjaldeyrishafta taka tímann sinn og verða framkvæmd af mikilli varfærni. Sjóðurinn telur áhættu sem tengist of hröðu afnámi haftanna einn af lykiláhættuþáttum varðandi framgang efnahagsáætlunar sjóðsins og stjórnvalda.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að sjóðurinn virðist hafa áhyggjur af því að krónan kunni að gefa talsvert eftir verði farið of hratt í afnámið. Leggur AGS áherslu á endurbætur á peningastefnunni í tengslum við þær endurskoðanir á efnahagsáætluninni sem eftir eru.

Þá telur sjóðurinn mikilvægt að Seðlabankinn setji aukinn kraft í gjaldeyriskaup sín í því skyni að stækka gjaldeyrisforðann, en líklega munu Seðlabankamenn halda að sér höndum hvað það varðar þar til krónan sækir í sig veðrið að nýju.

Má búast við að ný áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna, sem birta á ríkisstjórn fyrir febrúarlok, verði í hinum varfærna anda sem AGS boðar. Seðlabankinn útbýr áætlunina í samvinnu við starfshóp þar sem starfsmenn bankans, efnahags- og viðskiptaráðuneytis, fjármálaráðuneytis og FME eiga sæti. Auk þess verður utanaðkomandi sérfræðingur fenginn til aðstoðar.

Þótt áætlunin verði tæpast tímasett mun hún innihalda lýsingu á framkvæmd haftaafléttingar og útskýra hvernig metið verður hvort hin ýmsu skilyrði fyrir frekari skrefum í þá átt séu fyrir hendi. Slík skilyrði snúa til að mynda að sjálfbærni ríkisskulda og getu til þess að sækja lánsfé á erlenda markaði, nægu framboði innlendra fjárfestingarkosta og stöðugleika fjármálakerfisins.

Í viljayfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við 4. endurskoðun lýstu þau vilja sínum til þess að auka gjaldeyriskaup Seðlabankans á markaði þar sem nauðsynlegt er að stækka þann hluta gjaldeyrisforða bankans sem ekki er tekinn að láni. Tekur AGS undir þetta sjónarmið, enda sé útlitið gott varðandi greiðslujöfnuð, og þar með innflæði gjaldeyris, á næstunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×