Keyptu verðlaus hlutabréf rétt fyrir ríkisvæðingu 30. apríl 2011 13:11 Glitnir.
Styrkur Invest, eitt margra félaga sem tengdust Baugi Group, gerði tvo framvirka samninga um kaup á hlutum í fjárfestingafélaginu FL Group, langt yfir markaðsverði bréfanna á þeim tíma, samkvæmt frétt Morgunblaðsins um málið. Í Morgunblaðinu kemur fram, að samningarnir voru gerðir miðvikudaginn 1. október 2008, en aðeins tveimur dögum áður hafði íslenska ríkið lýst því yfir að 75% hlutafjár í Glitni yrðu tekin yfir gegn 600 milljóna evra eiginfjárinnspýtingu í bankann. Strax í kjölfarið hrundi hlutabréfaverð Glitnis, en FL Group var stærsti hluthafi bankans. Því var ljóst að eiginfjárstaða FL Group var á þessum tíma neikvæð. Samningarnir eru tveir og hljóða upp á alls 14 milljarða króna, að því er kemur fram í kröfulýsingu Glitnis í þrotabú Styrks Invest, sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Báðir samningarnir voru gerðir 1. október og afhendingardagur beggja samninga var tíu dögum síðar. Í öðrum samningnum, upp á 4,2 milljarða króna, skuldbatt Styrkur sig til að kaupa um 82 milljónir hluta í FL á verðinu 50,5. Í hinum samningnum skuldbatt félagið sig til að kaupa ríflega 793 milljónir hluta á genginu 12. Báðum samningum var lokað eftir að skilanefnd hafði tekið yfir stjórn Glitnis. Ekki kemur fram hver seljandinn var. Hvort það hafi verið félagið sjálft eða hluthafi í FL Group.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira