Ekki hægt að gefa sér frekari lækkanir 3. febrúar 2011 03:00 Í Seðlabankanum Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur kynntu í gær stýrivaxtaákvörðun og efnahagsspá Seðlabanka Íslands. Fréttablaðið/Pjetur
Efnahagsmál Lækkunarferli stýrivaxta, sem staðið hefur frá ársbyrjun kann að vera lokið, að því er fram kom á kynningarfundi vegna vaxtaákvörðunar í Seðlabanka Íslands í gær. Kynnt var ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að lækka vexti bankans um 0,25 prósentustig, en það er nokkuð undir væntingum greinenda sem bjuggust við 0,25 til 0,75 prósentustiga lækkun. Vextir bankans eru nú 3,25 til 5,25 prósent. „Þar sem horfur eru á að verðbólga verði áfram við verðbólgumarkmiðið og í ljósi þess að vextir eru í sögulegu lágmarki ríkir aukin óvissa um í hvaða átt næstu vaxtabreytingar verða. Áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapa einnig óvissu til skemmri tíma,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar. Krónan hefur veikst um 4,5 prósent frá síðustu vaxtaákvörðun, en Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði of snemmt að segja til um að hve miklu leyti mætti rekja veikingu hennar til tímabundinna þátta. Vaxtaákvörðunina nú yrði hins vegar bæði að skoða í ljósi stöðu krónunnar og í því samhengi að verðbólga, sem nú mælist 1,8 prósent, sé komin niður fyrir markmið bankans. „En vextirnir eru líka komnir inn á það svæði þar sem spurning vaknar um hvar jafnvægisraunvextir eru um þessar mundir,“ sagði Már, en áréttaði um leið að á tímum mikils slaka í hagkerfinu væri ekki óeðlilegt að fara niður fyrir þá. „Nú erum við komin á þann tímapunkt að óvissa getur ríkt um í hvaða átt næstu vaxtabreytingar fara,“ sagði Már og kvað horft til þátta á borð við þróun gengis krónunnar miðað við núverandi vaxtastig, samband vaxta og gengis þegar hafin verður aflétting gjaldeyrishafta og hvernig vextir þurfi að þróast til að verðbólga haldist innan marka. Fram kom á fundinum í Seðlabankanum í gær að fyrir lok þessa mánaðar eigi að vera tilbúin til kynningar áætlun um afnám gjaldeyrishafta, en hún eigi að taka mið af því að ekki verði verulegur óstöðugleiki á gengi krónunnar meðan á því ferli stendur. „Markmiðið er að gengisbreyting sé um það bil samhverf, þannig að það verði nánast jafnmiklar líkur á að gengið styrkist við það að afnema höftin, eins og að það veikist,“ sagði Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira