ESB-ríki ákveða sjálf kvóta í staðbundnum fiskistofnum 11. mars 2011 07:00 Aðildarríki ESB munu héðan í frá geta ákvarðað aflahámark úr staðbundnum stofnum innan lögsögu sinnar. Fréttablaðið/Stefán
Aðildarríki Evrópusambandsins (ESB) geta ákvarðað einhliða hámarksafla úr stofnum sem eru alfarið nýttir af viðkomandi ríki, í stað þess að tekin sé sameiginleg ákvörðun í ráðherraráðinu eins og átt hefur við hingað til. Þetta kemur fram í nýrri reglugerð ESB um sameiginlega fiskveiðistjórnun og gæti haft áhrif á stöðu Íslands, komi til aðildar að sambandinu. Nýtt ákvæði í sjöttu grein reglugerðarinnar, sem sett var 18. janúar, kveður á um að viðkomandi aðildarríki skuli ákvarða leyfilegt aflahámark í vissum stofnum, sem eru tilteknir í viðauka. Sú ákvörðun skal þó vera í samræmi við meginreglu sjávarútvegsstefnunnar um sjálfbæra nýtingu og einnig með þeim formerkjum að nýting stofnsins skili sem mestum ávinningi. Í gögnum framkvæmdastjórnar ESB um undirbúning reglugerðarinnar segir auk þess: „Í ljósi aukinnar áherslu á svæðaskiptingu í framkvæmd fiskveiðistefnunnar sækist framkvæmdastjórnin eftir ráðgjöf hagsmunaaðila við að færa stjórn aflaheimilda, sem varða aðeins eitt aðildarríki, undir viðkomandi ríki". Sú tilfærsla sé þó háð skilyrðum um upplýsingagjöf og góða stjórnunarhætti. Aðalsteinn Leifsson, stjórnmálafræðingur og lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, segir reglugerðina styrkja stöðu Íslands í sjávarútvegsmálum. „Samkvæmt reglugerðinni hafa einstaka aðildarríki heimild til að ákvarða einhliða hámarksafla í ákveðnum stofnum sem einungis viðkomandi ríki nýtir, svo lengi sem meginsjónarmið um skynsamlega nýtingu eru viðhöfð," segir Aðalsteinn. Meirihluti afla á Íslandsmiðum er úr fiskistofnum sem Íslendingar nýta einir, en ekki sameiginlega með nágrannaríkjum. Aðalsteinn bætir því við að enginn ágreiningur sé um að samkvæmt reglum ESB eigi ekkert annað ríki tilkall til veiðiréttar á botnfiski umhverfis Ísland á grundvelli sögulegrar veiðireynslu. „Þessi reglugerð bætir um betur og gefur Íslandi að minnsta kosti tækifæri til að setja fram og rökstyðja þá kröfu að ákvörðun um hámarksafla í botnfiski í íslenskri lögsögu verði eftir sem áður í höndum íslenskra stjórnvalda, enda verði sóknin í fiskistofnana áfram ábyrg og skili sem mestum efnahagslegum ávinningi."- þj
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira