Lánastofnanir á leigumarkað 21. febrúar 2011 11:00 Samráðshópur velferðarráðuneytisins vinnur að endurskipulagningu húsnæðismarkaðsins.Fréttablaðið/Pjetur
Verið er að kanna hvort leigja eigi út þær tvö þúsund íbúðir sem eru í eigu lífeyrissjóða, banka og annarra lánastofnana í gegnum fasteignafélög sem starfrækt yrðu á leigumarkaði. Samráðshópur á vegum velferðarráðuneytisins hefur átt í viðræðum við lífeyrissjóði, sveitarfélög og lánastofnanir um aðkomu þeirra að slíkum félögum. „Flestir eru sammála um að það þurfi að efla almennan leigumarkað. Lífeyrissjóðirnir eru opnir fyrir þessu. En þeirra fjárfestingar verða eðlilega að skila lágmarksarðsemi," segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingkona Samfylkingarinnar og formaður hópsins. Sigríður segir að öflugri leigumarkaður geti haft jákvæð áhrif víða í þjóðfélaginu. Það gæti meðal annars unnið gegn bólumyndun á fasteignamarkaði, auk þess sem meiri sveigjanleiki í húsnæðismálum geti verið hagkvæmur fyrir atvinnu- og efnahagslíf. Leigumarkaðurinn eigi þá að vera raunhæfur valkostur, óháð aðstæðum. „Séreignarstefnan hefur lengi verið ríkjandi viðhorf en ekki bara vegna þess að fólki finnist betra að eiga íbúð, heldur líka til að njóta öryggis og stöðugleika," segir hún. Kerfi húsaleigubóta og vaxtabóta eru þess eðlis að almenningur er beinlínis hvattur til húsnæðiskaupa, að mati Sigríðar. „Að mínu mati er ekki fært að efla leigumarkað en viðhalda þessum mismun á milli kerfa," segir hún. Samráðshópurinn, sem er meðal annars skipaður fulltrúum stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og lífeyrissjóða, mun leggja fram tillögur sínar 1. apríl. - þj , svSigríður Ingibjörg Ingadóttir
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira