Fulltrúi á stjórnlagaþingi: Ólétt og atvinnulaus Breki Logason skrifar 26. janúar 2011 12:16 Ástrós Gunnlaugsdóttir.
Hin tuttugu og fjögurra ára gamla Ástrós Gunnlaugsdóttir, sem náði kjöri á Stjórnlagaþing, segir niðurstöðu Hæstaréttar mikil vonbrigði. Hún eyddi sparifénu í kosningabaráttuna, tók sér frí frá námi og situr nú ólétt heima. Hún íhugar að leita réttar síns og vonar að einhver grípi inn í. Ástrós var ein sú yngsta sem náði kjöri á þingið en hún var nokkuð áberandi í kosningabaráttunni. Hún segist hafa eytt öllu sínu sparifé sem hún hafi safnað frá tólf ára aldri í kynningar á sjálfri sér, því hún hafi litið á þetta sem fjárfestingu í sinni framtíð. Hún tók sér frí frá námi og segist ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum vegna þess að hún var námsmaður. Hún muni því sitja heima tekjulaus fram á sumar þegar barnið kemur í heiminn. „Eins og staðan er í dag veit ég ekki annað en að ég er umboðslaus og þá sit ég bara heima fram á sumar. Ég geri ekkert annað þangað til. Ég hef ekkert til þess að grípa í," segir hún. Ástrós segist hafa hlustað á málflutninginn fyrir Hæstarétti og hafa lauslega kynnt sér niðurstöðuna. „Fyrir mína parta skil ég að mörgu leytinu til rökstuðning Hæstaréttar. En dómurinn er harður. Það hefði mátt veita áminningu." Ástrós segir það fyrst og fremst mikilvægt lýðræðinu í landinu að þessi vinna fari fram. Hún treysti sér þó ekki til þess að segja til um hvað eigi að gera í stöðunni. En ætlar hún að leita réttar síns vegna þessa? „Já. Ég eyddi mínu sparifé í kosningabaráttuna og vinnu. Auðvitað leita ég réttar míns verði þetta niðurstaðan," segir Ástrós að lokum.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Sjá meira