Sjóvá bjargað vegna sjónarmiða FME 26. janúar 2011 17:26
Fjármálaráðherra tók ákvöðun um að bjarga Sjóvá frá gjaldþroti vegna sjónarmiða Fjármálaeftirlitsins (FME) í málinu. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur þingmanns Framsóknarflokksins um eiginfjárframlag til SAT eignarhaldsfélags hf. Eygló spurði á hvaða lagaheimild byggði ráðherra ákvörðun um að leggja SAT eignarhaldsfélagi hf. til eiginfjárframlag að upphæð 11,6 milljarðar kr.? Í svarinu segir: „FME lagði á það ríka áherslu að félagið yrði ekki sett í þrot. Voru veigamestu rök FME þau að gjaldþrot félagsins hefði „alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir fjármálastarfsemina hér á landi þ.á.m. neytendur." Vátryggingafélagið væri meðal þeirra fjármálafyrirtækja sem veittu ákveðna grunnþjónustu hér á landi og gegndi því mjög mikilvægu þjóðfélagslegu hlutverki. Mikilvægt væri því að mati stofnunarinnar að allt yrði gert sem unnt væri til að verja hagsmuni neytenda í þessu efni. Því studdi stofnunin og mælti eindregið með þeirri leið sem farin var til að forða félaginu frá gjaldþroti með aðkomu ríkissjóðs, Glitnis hf. og Íslandsbanka. Það fé sem vantaði inn í sjóði Sjóvá til að gera félagið starfhæft samkvæmt skilyrðum FME nam um 16 milljörðum kr. Skilanefnd Glitnis var reiðubúin til að leggja fram um 2,8 milljarða kr. til lausnar málinu og Íslandsbanki um 1,5 milljarða kr. Til þess að endurreisn Sjóvár yrði möguleg var það metið svo að ríkissjóður þyrfti að koma að málinu og leggja fram um 12 milljarða kr. fjárframlag. Þetta var annars vegar gert með upphaflegri kröfu Seðlabankans á hendur Askar Capital (sem framseld hafði verið ríkissjóði) samkvæmt verðtryggðum lánasamningi, upphaflega að fjárhæð um 6 milljarðar kr. með 3,0% ársvöxtum og hins vegar með um 5,6 milljarða kr. verðtryggðu skuldabréfi útgefnu af Landsvirkjun með 3,5% föstum ársvöxtum. Umsamið kaupverð á þessum eignum var samtals um 11,6 milljarðar kr." Þá kemur fram að til viðbótar við veigamikil rök FME um þá áhættu sem mundi skapast innan fjármálakerfisins við þrot Sjóvar voru einnig eftirfarandi sjónarmið höfð til hliðjónar við ákvörðunartökuna um ríkisframlag til handa fyrirtækinu. „Í fyrsta lagi var talið að færi tryggingafélagið í greiðsluþrot gæti það haft alvarleg áhrif á endurtryggingasamninga, ekki bara Sjóvár heldur einnig samninga annarra tryggingafélaga. Þetta gæti þýtt mun hærri iðgjöld sem greiða þyrfti til erlendra endurtryggjenda og þar með hækkun á iðgjöldum til innlendra aðila, þar á meðal almennings. Í öðru lagi var talið að þrot félagsins og þar með hækkun á iðgjöldum erlendra endurtryggjenda gæti dregið úr greiðsluflæði í erlendri mynt vegna hærri iðgjalda. Í þriðja lagi var talið að sú staðreynd að eitt af stærstu tryggingafélögum landsins færi í gjaldþrot hefði slæmar afleiðingar fyrir traust Íslendinga á vátryggingamörkuðum og alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Í fjórða lagi var samkvæmt fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka töluverður áhugi ýmissa aðila á að kaupa Sjóvá. Í fimmta lagi var talið að greiðsluþrot tryggingahluta félagsins hefði getað haft fjárhagslegar afleiðingar í för með sér fyrir ríkissjóð."
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Sjá meira