Stofnfjáreigandi í Byr þarf ekki að greiða Íslandsbanka 21. janúar 2011 14:22
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að Ólöfu Þórönnu Hannesdóttur stofnfjáreigenda í Byr beri ekki að endurgreiða Íslandsbanka tæpar 20 milljónir kr. vegna láns sem Ólöf fékk hjá Glitni á sínum tíma til að taka þátt í stofnfjáraukningu Byr árið 2007. Ólöf er fædd árið 1932 og er ellilífeyrisþegi. Hún var stofnfjáreigandi í Byr sparisjóði og nam stofnfjáreign hennar í nóvember 2007 1.065.985 krónum að nafnvirði. Með bréfi stjórnar Byrs sparisjóðs 28. nóvember 2007 var henni tilkynnt að ákveðið hefði verið að auka stofnfé í sparisjóðnum um 12,7 milljarða kr. Yrði það gert með útboði þar sem stofnfjáreigendur gætu skráð sig fyrir nýju stofnfé. Athygli var vakin á því að útboðslýsing væri aðgengileg á vef sparisjóðsins og voru stofnfjáreigendur hvattir til að kynna sér efni hennar. Ólöf ákvað að taka tilboði Glitnis um lán til að fjármagna kaupin á hinu nýja stofnfé. Í lánsamningnum segir að trygging fyrir láninu sé bundin við stofnféið sem keypt var. Við fall Glitnis færðist lánið svo yfir til Íslandsbanka. Í dóminum segir að Ólöf byggði sýknukröfu sína í fyrsta lagi á því að um það hafi verið samið milli aðila að áhætta Glitnis banka af lánveitingunni yrði alfarið bundin við stofnbréfin sjálf en ekki aðrar eignir hennar. Um þetta vísar Ólöf m.a. til samningsins milli Byrs sparisjóðs og Glitnis banka frá 12. nóvember 2007. Telur Ólöf að þar hafi bankinn skuldbundið sig til að taka aðeins stofnfé sem tryggingu fyrir endurgreiðslu lánsins en ekki aðrar eigur stofnfjárhafa. Þá vísar Ólöf til hins ódagsetta tilboðsblaðs Glitnis banka sem hún álítur vera meðal samningsgagna. Telur hún að í yfirlýsingunni þar sem segi að ekki sé krafist frekari trygginga felist skýr og ótvíræð skuldbinding af hálfu bankans um að hann muni ekki ganga að öðrum eignum en stofnfjárbréfunum sjálfum komi til greiðslufalls. Jafnframt felist í þessari yfirlýsingu skuldbinding um að ganga ekki að lántaka persónulega, því ella hefði yfirlýsingin um að ekki væri krafist frekari trygginga en í stofnfé ekkert gildi. Í dóminu segir svo: „Þegar litið er til framangreindra atriða, er lúta að atvikum við samningsgerðina og stöðu aðila, efni lánssamningsins og atvika sem síðar komu til, er það niðurstaða dómsins að ósanngjarnt sé af stefnanda (Íslandsbanka) að bera lánssamninginn fyrir sig að því leyti sem hann felur í sér rétt til að leita fullnustu á greiðsluskyldu stefndu (Ólafar) í öðrum eignum en hinum veðsettu stofnfjárbréfum og arði af þeim. Því er rétt að breyta efni hans þannig að stefnanda sé einungis unnt að leita fullnustu í stofnfjárbréfunum og arði af þeim. Þar sem krafa stefnanda beinist að því að fá aðfararhæfan dóm um skyldu stefndu til greiðslu eftirstöðva lánsins verður stefnda sýknuð af kröfum stefnanda." Íslandsbanka er gert skylt að greiða 2 milljónir kr. í málskostnað. Í öðrum dómi héraðsdóms í dag voru tveir stofnfjáreigendur í Sparisjóði Norðlendinga sýknaðir í samskonar máli sem Íslandsbanki höfðaði gegn þeim.
Mest lesið „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Sjá meira