Tveggja milljarða hagnaður af Icelandair 21. janúar 2011 00:01 Á fundi Finnbogi Jónsson framkvæmdastjóri og Ágúst Einarsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands. Fréttablaðið/GVA
Viðskipti Fjárfesting Framtakssjóðs Íslands í Icelandair Group hefur skilað sjóðnum 2,2 milljarða króna hagnaði. Þetta er meðal þess sem Ágúst Einarsson, stjórnarformaður sjóðsins, kynnti á hluthafafundi hans í gær. „Icelandair var okkar fyrsta fjárfesting á síðasta ári. Við fjárfestum þar fyrir 3,6 milljarða króna, en sú fjárfesting stendur núna í 5,8 milljörðum í bókfærðu virði,“ segir Ágúst. Markmið sjóðsins segir hann tvíþætt, að ávaxta fé hluthafa og taka þátt í endurreisninni. „Og hvað Icelandair varðar fóru þessi markmið algjörlega saman.“ Á hluthafafundinum upplýsti Ágúst einnig að lokið hafi verið öllum enda varðandi kaup sjóðsins á Vestia, eignarhaldsfélagi Landsbankans, sem nú á fjórðungshlut í Framtakssjóðnum, á móti lífeyrissjóðunum sextán. Ágúst segir að Húsasmiðjan verði á næstunni sett í opið söluferli og að fyrir dyrum standi endurskipulagning á fyrirtækjum innan upplýsinga- og fjarskiptageirans, sem nú heyri undir Teymi. Þau verði seld á næstu árum. Viðræðum við evrópska fjárfestingarsjóðinn Triton segir Ágúst að ljúki fyrir mánaðamót. „Þessar tölur sem Triton nefndi voru það háar að enginn hefur slegið þær út og við vildum kanna það í þaula. En við vitum svo sem ekki með niðurstöðu á því,“ segir hann. Náist ekki samkomulag kunni nálgunin að verða önnur þegar frekari skref verða tekin í sölunni á verksmiðjustarfsemi Icelandic Group. - óká
Mest lesið Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira