Viðskipti innlent

Kaupmáttur launa lækkaði lítillega í desember

Vísitala kaupmáttar launa í desember 2010 er 107,2 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,0%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að launavísitala í desember 2010 er 383,1 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,5%.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×