Heildarverðmæti skulda og hlutafjár um 64 milljarðar 21. janúar 2011 18:45 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefur ekki upplýst þingið um sundurliðun á einstökum þáttum sölunnar. Mynd/GVA
Heildarverðmæti skulda og hlutafjár í samkomulagi Landsbankans og Framtakssjóðs Íslands um kaupin á Vestia nemur 64 milljörðum króna. Uppgefið kaupverð var 15,5 milljarðar en fjármálaráðherra hefur ekki upplýst þingið um sundurliðun á einstökum þáttum sölunnar. Framtakssjóður Íslands gekk frá kaupum á eignarhaldsfélaginu Vestia af Landsbankanum hinn fyrsta desember á síðasta ári. Í kaupunum eignaðist Framtakssjóðurinn Icelandic Group, Teymi, Húsasmiðjuna og Plastprent. Uppgefið kaupverð var 15.5 milljarðar króna. Í svari fjármálaráðherra við fyrirspurnum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um málið kom fram að heildarverðmæti alls hlutafjár Icelandic Group sé 13,9 milljarðar króna. Hins vegar heldur Landsbankinn eftir 19% hlut í félaginu. Þá kvaðst fjármálaráðherra ekki ætla að upplýsa um hvernig kaupverð annarra eignarhluta væri sundurliðað en umsamið kaupverð þeirra væri 4,25 milljarðar. Þetta féll illa í þingmenn, bæði stjórnarliða og stjórnarandstæðinga, en þeir töldu sig eiga rétt á því að fá söluverð eigna í eigu ríkisbankans upplýst. Samkvæmt heimildum fréttastofu er kaupverð Teymis, í þeim útreikningum sem liggja að baki samkomulagi Framtakssjóðsins og Landsbankans um söluna Vestia, 3,7 milljarðar króna. Húsasmiðjan var seld á 500 milljónir króna og Plastprent á 50 milljónir. Hins vegar gefa þessar tölur ónákvæma mynd af kaupunum því á félögunum hvíla einnig skuldir. Samkvæmt heimildum fréttastofu er heildarverðmæti skulda og hlutafjárs í samkomulaginu um kaupin á Vestia 64 milljarðar. Þar af eru 42 í Icelandic Group en 22 í Teymi, Húsasmiðjunni og Plastprenti en þetta staðfestir Landsbankinn í samtali við fréttastofu.
Mest lesið Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira