Ferðaskrifstofa Akureyrar eykur umsvifin 5. janúar 2011 11:01
Nú um áramótin tók ný innanlandsdeild Ferðaskrifstofu Akureyrar formlega til starfa og mun megin hlutverk hennar verða skipulag á ráðstefnum, fundum og hvataferðum á Akureyri og Norðausturlandi. Í tilkynningu segir að Hrafnhildur E. Karlsdóttir stýri þessu verkefni hjá FA og hóf hún störf um áramótin. Hrafnhildur hefur um árabil gegnt stjórnunarstöðum hjá Keahótelum ehf. og var einnig á sínum tíma forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Akureyri. Fyrstu ráðstefnurnar á vegum innanlandsdeildar FA hafa þegar verið bókaðar á Akureyri á þessu ári og þar af eru stórar alþjóðlegar ráðstefnur. Hrafnhildur segir markmiðið að laða bæði stórar ráðstefnur sem minni fundi á svæðið, jafnt erlendis frá sem innanlands. „Við byggjum á gömlum og rótgrónum grunni Ferðaskrifstofu Akureyrar sem hefur í gegnum áratugina skapað sér gott orð í þjónustu við viðskiptavini sína. Hér á svæðinu hafa opnast ný tækifæri á þessu sviði, fyrst og fremst með tilkomu menningarhússins Hofs og nýbyggingar Háskólans á Akureyri," segir Hrafnhildur. „Í báðum þessum húsum er mjög góð aðstaða til ráðstefnuhalds sem ekki hvað síst opnar okkur ný tækifæri hvað varðar stærri ráðstefnur og fundi. Nú er einnig að verða aukning í gistirými hér á Akureyri á næstu misserum og það, ásamt fjölbreyttri flóru í veitingastarfsemi, styrkir þann grunn sem við höfum til að sækja fram á ráðstefnusviðinu."
Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira