Árni Páll: Verður ekki var við kúgunartilburði vegna Icesave Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 21. apríl 2011 12:15 Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra.
Matsfyrirtækið Moody's staðfesti í gærkvöldi lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs með neikvæðum horfum. Efnahags- og viðskiptaráðherra segir hálfan sigur unninn. Beðið hefur verið eftir nýju mati frá matsfyrirtækjunum Moody's og Standard & Poor's síðan Icesave-samkomulagið var fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir tæpum hálfum mánuði. Í mati Moody's segir að þrátt fyrir niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar sé útlit fyrir að hlutagreiðslur úr þrotabúi gamla Landsbankans hefjist senn. Þá virðast eignir þrotabúsins vera verðmætari en áður var talið. Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra segir hálfan sigur unninn með ákvörðun Moodys. „Aðalmálið er að við áttum okkur á við þurfum að halda vel á spöðunum áfram og sýna umheiminum fram á að við séum nú að nálgast af alvöru það erfiða verkefni sem við erum að takast á við,“ segir Árni Páll. Þá segir í mati Moodys að ekki sé talið líklegt að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar hafi áhrif á efnahagsáætlun AGS og stjórnvalda þótt fimmta endurskoðun áætlunarinnar muni tefjast. „Við erum að vonast til þess að fimmta endurskoðun geti gengið í gegn fyrir lok maí, sendinefnd frá sjóðnum kemur hingað strax eftir páska og við vonumst eftir að málið verði tekið fyrir í stjórn sjóðsins í seinni hluta maí.“ Hann segir engar líkur á því að Hollendingar og Bretar beiti sér gegn framgöngu efnahagsáætlunarinnar í stjórn AGS. „Málin sem varða samskipti Íslands, Bretlands og Hollands eru í eðlilegum farvegi og við verðum ekki vör við að það sé einhver tilhneiging af þeirra hálfu að beita einhverjum kúgunaraðferðum.“ Árni segir að verið sé að klára svar við bréfi ESA vegna Icesave málsins og það verði sent 2.maí næstkomandi.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Sjá meira