Bónusinn skipti víst máli - Hæstiréttur hafnaði Ríkharði 28. febrúar 2011 10:58 Ríkharður Daðason.
Hæstiréttur Íslands snéri dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem launakrafa Ríkharðs Daðasonar, var viðurkennd sem forgangskrafa í þrotabú Kaupþings. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á það í desember á síðasta ári að launakrafa Ríkharðs Daðasonar, hjá Kaupþingi, væri forgangskrafa. Ríkharður krafðist þess að honum yrðu greiddar tæplega 27 milljónir króna vegna vangoldinna launa og launa á uppsagnafresti. Grunnlaun Ríkharðs voru 450 þúsund krónur en hann gerði munnlegt samkomulag við framkvæmdastjóra markaðsviðskipta bankans um að heildarlaun hans yrðu 2,4 milljónir á mánuði. Þannig átti Ríkharður að fá greiddan bónus til þess að brúa bilið. Um þetta var deilt þar sem Kaupþing hélt því fram að bónusgreiðslur til starfsmanna hefðu nánast undantekningarlaust verið háðar því skilyrði að arðsemi eigin fjár bankans væri yfir 15% fyrstu sex mánuði ársins, og svo síðari sex mánuði ársins. Jafnframt væru þær háðar mati á frammistöðu þess sviðs sem starfsmaður hafi starfað á sem og frammistöðu viðkomandi starfsmanns á því tímabili. Samningar sem vikið hafi frá fyrrgreindum meginreglum hafi því verið algjör undantekning og þá vegna sérstakra aðstæðna; sem voru þær að bankinn átti í verulegum fjárhagsvandræðum árið 2008 sem varð til þess að hann féll að lokum í bankahruninu. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að bankinn hefði gert samning við Ríkharð þar sem laun hans hafi átt að vera 2,4 milljónir á mánuði. Þá skiptir engu með bónusinn. Héraðsdómur lækkaði hinsvegar launakröfu Ríkharðs og samþykkti að hann ætti 21 milljón króna forgangskröfu í þrotabú Kaupþings. Þessu var Hæstiréttur ósammála og vildi meina að það væri ósannað, með staðfastlegri neitun Kaupþings, að samningar um bónus hefðu komist á. Þá segir í niðurstöðu Hæstaréttar að ekki hafi náðst „15% arðsemi eigin fjár" Kaupþings á árinu 2008, sem samkvæmt starfskjarastefnu hans var frumskilyrði þess að kaupaukagreiðslur yrðu ákveðnar handa starfsmönnum. Því hafnar Hæstiréttur alfarið kröfu Ríkharðs.
Tengdar fréttir Bónusinn skipti engu máli - Ríkharður fær 21 milljón Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á að launakrafa Ríkharðs Daðasonar, hjá Kaupþingi, væri forgangskrafa. Ríkharður krafðist þess að honum yrðu greiddar tæplega 27 milljónir króna vegna vangoldinna launa og launa á uppsagnafresti. 9. desember 2010 15:42 Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira
Bónusinn skipti engu máli - Ríkharður fær 21 milljón Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á að launakrafa Ríkharðs Daðasonar, hjá Kaupþingi, væri forgangskrafa. Ríkharður krafðist þess að honum yrðu greiddar tæplega 27 milljónir króna vegna vangoldinna launa og launa á uppsagnafresti. 9. desember 2010 15:42