Nær óbreyttur hagnaður hjá Íslandspósti milli ára 28. febrúar 2011 14:38
Hagnaður varð af rekstri Íslandspósts hf. á árinu 2010 að fjárhæð 93 milljónir króna. Þetta er nær sami hagnaður og varð hjá póstinum árið áður. Í tilkynningu um uppgjörið segir að heildartekjur félagsins á síðasta ári námu 6,3 milljörðum króna og drógust saman um 1% frá fyrra ári. Heildareignir voru 5,0 milljarðar króna í árslok 2010 og eigið fé nam 2,7 milljörðum króna. Félagið greiddi 40 milljónir króna í arð til ríkissjóðs á árinu. Verulegur samdráttur hefur verið í bréfasendingum á undanförnum árum. Frá hausti 2008 til ársloka 2010 hefur bréfum í einkarétti fækkað um 20%. Spáð er áframhaldandi magnminnkun og má gera ráð fyrir að bréfapósti muni fækka enn frekar um allt að 25% til ársins 2015. Á árinu 2010 var áfram unnið að endurbótum á starfsstöðvum Íslandspósts í samræmi við ákvörðun stjórnar frá árinu 2006 um uppbyggingu starfsstöðva félagsins á helstu þéttbýlisstöðum landsins. Sú ákvörðun kom til af því, að við uppskiptingu Pósts og síma árið 1998 í tvö aðskilin félög, Íslandspóst annars vegar og Símann hins vegar, tók Íslandspóstur yfir meginhluta fasteigna Pósts og síma, en þær voru á sínum tíma byggðar með þarfir hins sameiginlega fyrirtækis í huga. Í flestum tilvikum hentuðu þær ekki þeirri starfsemi, sem Íslandspósti var ætlað að sinna. Því hefur markvisst verið unnið að endurbótum á starfsaðstöðu félagsins víðs vegar um land undanfarin ár, einkum í þéttbýlissveitarfélögum. Uppbyggingaráætlunin er nú vel á veg komin og voru á árinu 2010 nýjar eða endurbættar starfsstöðvar teknar í notkun á Akureyri, í Kópavogi og í Reykjavík. Hvern virkan dag handleika starfsmenn Íslandspósts um 350 þúsund póstsendingar til íslenskra heimila og fyrirtækja.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira