Ætla að gera hasarmynd úr Leynilöggustiklunni 5. apríl 2011 16:00 „
Ég er mjög spenntur og hlakka mikið til að skrifa þetta – mig hefur alltaf dreymt um að gera bíómynd,“ segir sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal. Auddi er byrjaður að skrifa handrit að hasarmyndinni Leynilögga ásamt Agli Einarssyni, Hannesi Þór Halldórssyni og Huga Halldórssyni. Stikla við myndina sló í gegn á dögunum, en hún var framleidd fyrir sérstaka stiklukeppni Audda og Sveppa sem fór fram í þætti þeirra á Stöð 2. Verkefnið er á byrjunarstigi en Sena hyggst koma að því sem meðframleiðandi. „Við erum komnir með þráð í gegnum myndina – um hvað hún á að fjalla,“ segir Auddi. „Fólk sá náttúrlega mikið af því í treilernum. Við verðum samt að passa okkur á því að það verði ekki allt gefið upp í honum.“ Auddi og félagar stefna að því að handritið verði tilbúið í sumar, en þá fer lengra ferli í gang; klára þarf fjármögnun og ganga frá öðrum lausum endum. Ef allt gengur upp yrði myndin frumsýnd á næsta ári. Fjölmargir þekktir leikarar komu fram í stiklunni og Auddi segir þá vera spennta fyrir því að koma fram í kvikmyndinni. Á meðal þeirra sem komu fram í stiklunni eru Gísli Örn, Björn Hlynur, Hjalti Úrsus, Steindi Jr., Ingvar E., Heiðar Austmann og Íris Björk, kærasta Audda og fyrrverandi ungfrú Reykjavík, Hörður Magnússon, Hemmi Gunn og Egill Einarsson, sem leikur elskhuga Audda. „Það eru allir tilbúnir að leika þessi hlutverk í bíómynd. Mönnum finnst það mjög fyndið,“ segir Auddi. Miðað við stikluna verður myndin lögguhasar en augljóst er að grínið verður aldrei langt undan. „Við viljum að hún svínlúkki þannig að það séu flott hasaratriði, en aldrei stutt í grínið,“ segir Auddi, sem bjóst aldrei við viðbrögðunum sem stiklan fékk, en þau urðu til þess að handritsskrif hófust. „Það ræddu margir um að þeir vildu sjá treilerinn sem bíómynd.“atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira