Viðskipti innlent

Ein hópuppsögn tilkynnt í mars

Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsagnir í mars, þar sem sagt var upp 15 manns. Um er að ræða aðila í heilbrigðisþjónustu.

Þeir starfsmenn sem sagt hefur verið upp, koma til með að missa vinnuna í júlí og ágúst 2011. Ástæða uppsagnanna er endurskipulagning vegna niðurskurðar á fjárveitingum.

Þetta kemur fram á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir ennfremur að alls hafa Vinnumálastofnun borist tilkynningar um hópuppsagnir á 223 manns á árinu mest í mannvirkjagerð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×