Kaupmáttur launa hefur aukist um 4% frá botni kreppunnar 22. febrúar 2011 11:13
Kaupmáttur launa nú aukist um 4,1% frá því að hann náði botni í kreppunni í maí í fyrra. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Í Morgunkorninu segir að kaupmáttur launa hækkaði um 0,9% á milli desember í fyrra og janúar í ár. Hefur kaupmátturinn svona mældur hækkað um 2,5% yfir síðustu tólf mánuði en laun hafa hækkað á þessu tímabili um 4,4% og verðbólgan verið skapleg eða 1,8%. Hefur kaupmáttur launa verið vaxandi á þennan mælikvarða frá því í júní í fyrra. Mestu máli skiptir þar að verðbólgan hefur hjaðnað hratt undanfarið en launahækkanir hafa einnig verið talsverðar. Hefur kaupmáttur launa nú aukist um 4,1% frá því að hann náði botni í kreppunni í maí í fyrra. Var hann þá búinn að skreppa saman um 13,6% frá því að hann fór hæðst í aðdraganda hrunsins þ.e. í upphafi árs 2008. Það var Hagstofan sem birti vísitölu kaupmáttar launa í morgun. „Rétt er að undirstrika að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna hefur takið meiri niðursveiflu í þessari kreppu en kaupmáttur launa,“ segir í Morgunkorninu. „Ástæðan er sú að í kaupmætti ráðstöfunartekna mælist niðursveiflan í kaupmætti launa ásamt sveiflunni í atvinnuleysinu og beinum sköttum en bæði hefur atvinnuleysi aukist umtalsvert í hruninu og tekjuskattur verið hækkaður. Þannig dróst kaupmáttur ráðstöfunartekna saman um 7,7% í fyrra eftir að hafa dregist saman um 17,7% á árinu 2009 samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum. Reiknar bankinn með því að kaupmáttur ráðstöfunartekna vaxi hins vegar í ár um 0,4% og um 1,5% á næsta ári.“
Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Fleiri fréttir Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Sjá meira