Svartsýni eykst hjá íslenskum neytendum 22. febrúar 2011 13:51
Íslenskir neytendur eiga enn töluvert í land með að teljast vera bjartsýnir á ástand og horfur í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var í morgun. Mældist gildi hennar nú í febrúar 59,9 stig og lækkar lítillega, eða um 1,6 stig, frá því í janúar. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að landinn virðist því ekki enn vera búin að jafna sig eftir svartsýniskastið sem hann tók síðastliðið haust en sem kunnugt er þá tók vísitalan verulegan kipp niður á við í október og mældist þá 32 stig eftir nokkra hækkun mánuðina þar á undan. Vísitalan hefur farið hæst í 69,9 stig frá því að kreppan skall á sem var í ágúst síðastliðnum. Þó er óhætt að segja að nokkuð léttara sé yfir landanum nú en á sama tíma í fyrra þegar vísitalan mældist 46,2 stig en frá þeim tíma hefur hún að meðaltali mælst 56,1 stig. Vístalan mælir væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins, og þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir. Allar undirvísitölur Væntingavísitölunnar, að mati á efnahagslífinu undanskildu, lækkuðu á milli janúar og febrúar. Þannig lækkuðu væntingar íslenskra neytenda til aðstæðna í efnahags-og atvinnumálum þjóðarinnar eftir 6 mánuði um hálft stig sem er lítið og mælist sú vísitala nú 91,3 stig. Mat á núverandi ástandi lækkaði nokkuð meira, eða um 3,2 stig, en sú vísitala mælist 12,7 stig. Gildi þessarar vísitölu fyrir núverandi ástand hefur jafnframt lítið breyst síðasta árið en hún hefur að meðaltali verið um 12 stig. Mest var lækkunin á vísitölunni sem mælir mat á atvinnuástandinu en hún lækkaði um 6,3 stig milli mánaða og mælist nú 60,1 stig. Á hinn bóginn hækkaði sú vísitala sem mælir mat á efnahagslífinu lítillega, eða sem nemur um 1,4 stig, og mælist hún nú 57,9 stig.
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Sjá meira