Nýtt nafn á MP banka og breskir auðkýfingar meðal eigenda Þorbjörn Þórðarson skrifar 7. apríl 2011 19:32
Skipt verður um nafn á MP banka og hann verður eini bankinn á Íslandi sem ekki verður í eigu erlendra kröfuhafa eða ríkisins. Afar fjölbreyttur hópur fjárfesta tekur við, m.a breskir auðkýfingar með lögheimili á aflandseyjum og Skúli Mogensen. MP banki uppfyllti ekki skilyrði Fjármálaeftirlitsins (FME) um eigið fé um síðustu áramót og gaf FME bankanum tímafresti til að bregðast við. Eitt af úrræðunum sem voru í boði til að bæta úr því var að fá nýja fjárfesta að borðinu. Fyrirtækinu verður skipt upp og Margeir Pétursson, stofnandi bankans, hverfur úr hluthafahópnum en mun halda áfram utan um félag bankans í Úkraínu. Viðskiptablaðið í dag greindi frá því í dag að meðal nýrra eigenda MP banka yrðu Rowland-fjölskyldan breska sem keypti Kaupþing í Lúxemborg og breytti nafninu í Banque Havilland. Þá er Joe Lewis, breskur auðkýfingur með lögheimili á Bahama-eyjum, meðal nýrra fjárfesta í MP banka, en hann var viðskiptavinur Kaupþing Singer & Friedlander í Lundúnum sem fjármagnaði að hluta kaup hans á breska knattspyrnufélaginu Tottenham Hotspurs. Verður samanlagður eignarhlutur erlendu fjárfestanna í MP banka tuttugu prósent og verður Rowland-fjölskyldan þar af með tíu prósent. Skúli Mogensen mun halda utan um virkan eignarhlut í MP banka eftir breytingarnar, sem þýðir að hann verður með tíu prósent eða meira. Hann snýr nú aftur í íslenskt viðskiptalíf eftir níu ár erlendis, en hann hefur aðallega sinnt fjárfestingum í Kanada í háteiknigeiranum. Skúli sagði við fréttastofu í dag að hann hefði kynnt tækifærið að fjárfesta í MP banka fyrir Rowland-fjölskyldunni sem hefði svo fengið Joe Lewis að borðinu. Fyrrverandi stjórnendur Kaupþings sverja af sér öll tengsl við endurfjármögnun MP banka. „Okkur finnst skelfilegt að hugsa til þess að allar fjármálastofnanir landsins séu annað hvort í eigu skilanefnda sem eru í eigu erlendra kröfuhafa eða ríkisins. MP banki verður eini sjálfstæði banki landsins sem ekki hefur þegið krónu í fyrirgreiðslu eða styrki frá ríki eða Seðlabanka," segir Skúli Mogensen.Verzlunarbankanum kastað fram Samkvæmt heimildum fréttastofu verður skipt um nafn og merki á MP banka og farið í ímyndarherferð. Eitt af þeim nöfnum, sem fréttastofa hefur upplýsingar um að hafi verið rætt sem nafn á hinum nýja banka er Verzlunarbankinn. Gunnar Þ. Andersen, forstjóri FME, sagði við fréttastofu að FME hefði ekki sett sig upp á móti því að hinir nýju fjárfestar fengju heimild til að halda utan um virkan eignarhlut í MP banka, en þeir hafa undirgengist strangt ferli hjá FME í aðdraganda kaupanna. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira