Jólin

Kalkúnn með beikon- og pekanfyllingu

Bindið lærin saman og setjið vængina aftur fyrir bak.Pennslið með sjöri og kryddið með salti,pipar,og papríkudufti.Steikið í 45 mín á hvert kíló við 140 gráða hita i blástursofni og 150 gráða hita í 50-55 mín án blásturs. Ausið soðinu úr ofnskúffunni yfir fuglinn á 30 mín fresti.
Bindið lærin saman og setjið vængina aftur fyrir bak.Pennslið með sjöri og kryddið með salti,pipar,og papríkudufti.Steikið í 45 mín á hvert kíló við 140 gráða hita i blástursofni og 150 gráða hita í 50-55 mín án blásturs. Ausið soðinu úr ofnskúffunni yfir fuglinn á 30 mín fresti.

Kalkúnn 6-7 kg

100 g smjör (bráðið)

papríkuduft

salt & pipar

Soð í sósu

2 dl vatn

1 stk laukur

2 stk gulrætur

1 stk sellerístilkur

10 stk piparkorn

1 stk lárviðarlauf

2 stk negulnaglar

5 stk kjúklingateningar

Sósan

50 gr smjör

50 gr hveiti

1 l soð úr skúffunni

21/2 dl rjómi

1/2 dl sérrí

2 msk rifsberjahlaup

Rauð paprika er í þessu tilfelli notuð í fyllinguna en kalkúnn hefur síðustu ár orðið gríðarlega vinsæll jólamatur hér á landi, enda afar ljúffengur og hollur.

Fyllingin

3 stk epli,gul

1/2 stk paprika,rauð

1 stk laukur

1 stk gulrót

1 stk sellerístilkur

250 gr sveppir

6 sneiðar beikon

2 dl pecan hnetur

8 stk ristaðar franskbrauðsneiðar

1 msk salvía

1 stk egg

100 g smjör til steikingar

salt og pipar



Matreiðsla

Saxið laukinn og skerið sveppina,papríkuna,selleríið og gulrótina í teninga og steikið allt saman í smjöri á stórri wok pönnu.Skerið beikonið í smá bita og steikið með grænmetinu ,grænmetið á ekki að brúnast.

Takið pönnuna af hitanum. Afhíðið eplin,kjarnhreinsið og skerið í smáa bita.Grófhakkið hneturnar og skerið brauðið í teninga(takið skorpuna frá)Bætið öllu á pönnuna og kruddið með salti,pipar og salvíu.í lokin er eggið hrært út´og því bætt saman við fyllinguna.

Þerrið kalkúninn að innan og fyllið.Saumið fyrir.Bindið lærin saman og setjið vængina aftur fyrir bak.Pennslið með sjöri og kryddið með salti,pipar,og papríkudufti.

Steikið í 45 mín á hvert kíló við 140 gráða hita i blástursofni og 150 gráða hita í 50-55 mín án blásturs. Ausið soðinu úr ofnskúffunni yfir fuglinn á 30 mín fresti. Hækkið hitann í 200-220 gráður síðustu 10-15 mín.Verði ykkur að góðu!






×