Seðlabankinn tjáir sig ekki um AGS fundinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. apríl 2011 15:34 Seðlabankastjórar ætla ekki að tjá sig um fundinn um helgina. Mynd/ Pjetur.
Ákvörðun Seðlabanka Ísland um stýrivexti verður tilkynnt næstkomandi miðvikudag. Bankastjóri og seðlabankastjóri munu ekki tjá sig við fjölmiðla þangað til, hvorki um niðurstöðu fundar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um helgina né um önnur mál, samkvæmt upplýsingum úr bankanum. Fundur fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var haldinn á laugardaginn. Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri var fulltrúi Íslands í sjóðráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að þessu sinni og sótti fundinn. Að auki átti aðstoðarseðlabankastjóri fundi með matsfyrirtækjum og stjórnendum og starfsfólki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og sótti jafnframt ráðstefnu um fjármálastöðugleika og þjóðhagsvarnir. Fundina sóttu einnig Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra. Árni Páll sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að viðhorf Breta og Hollendinga til Íslendinga eftir atkvæðagreiðsluna um Icesave hefði breyst. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn teldi eðlilegt að Icesave málið yrði leitt til lykta fyrir dómstólum. Hins vegar kom fram í fréttum RÚV í gær að Frans Weekers ráðherra í hollenska fjármálaráðuneytinu hefði lýst því yfir við Steingrím J. Sigfússon á fundi þeirra í gær að Íslendingar gætu ekki reitt sig á að Hollendingar styddu áfram samstarf AGS við Ísland.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Sjá meira