Spáir minnstu verðbólgu frá árinu 2003 14. janúar 2011 11:50
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni lækka í janúar um 0,7% frá desembermánuði. Ef spáin gengur eftir verður verðbólgan 2,1% í mánuðinum og lækkar úr 2,5% í desember. Rætist spáin hefur verðbólgan ekki verið lægri síðan um mitt ár 2003. Hagstofan mun birta vísitölumælingu sína kl. 9:00 þann 26. janúar næstkomandi. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að það sem skýrir lækkun vísitölunnar nú eru fyrst og fremst tveir þættir: Annars vegar eru það útsölur, sem hafa jafnan veruleg tímabundin lækkunaráhrif á VNV í janúarmánuði. „Við gerum ráð fyrir svipuðum útsöluáhrifum að þessu sinni og raunin hefur verið hin síðustu ár, og áætlum að útsölur á fötum og skóm muni vega til 0,7% lækkunar VNV, en í heild gætu útsöluáhrifin vegið til u.þ.b. 1% lækkunar VNV," segir í Morgnkorninu. „ Þá kemur nú til sögunnar breyting á útreikningi kostnaðar við útvarp og sjónvarp, en Hagstofan tilkynnti fyrir áramót að hún mæti útvarpsgjaldið nú sem beinan skatt fremur en notendagjöld. Þessi breyting verður til þess að lækka útvarps- og sjónvarpslið VNV um 40% í janúar, sem hefur áhrif til 0,4% lækkunar á vísitölunni nú." Á móti þessum lækkunarþáttum vega gjaldskrárhækkanir, sem jafnan eru talsverðar um áramót, sem og hækkun opinberra gjalda á liði á borð við áfengi og eldsneyti. „Einnig teljum við að matar- og drykkjarvöruliður vísitölunnar muni hækka nokkuð að þessu sinni. Þá eru teikn á lofti um að húsnæðisliður vísitölunnar muni heldur hækka þennan mánuðinn," segir í Morgunkorninu. „Í kjölfar lækkunar í janúar gerum við ráð fyrir því að VNV hækki nokkuð það sem eftir lifir 1. ársfjórðungs. Teljum við þannig að vísitalan muni á heildina litið hækka um 0,6% frá ársbyrjun til marsloka. Áhrif útsöluloka munu væntanlega gera gott betur en vega upp mælda verðlækkun á fötum og skóm í janúar þegar fram í sækir, og áhrif af hækkandi hrávöruverði undanfarið munu ef að líkum lætur gera vart við sig í matvöruverði og fleiri innfluttum liðum á næstunni. Þá eiga innlend fyrirtæki trúlega enn eftir að velta einhverjum hluta undanfarinna kostnaðarhækkana út í verð vöru sinnar og þjónustu."
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira