Víxlar: Ríkissjóði bauðst bestu vaxtakjörin hingað til 14. janúar 2011 11:57
Ríkissjóður má vel við una miðað við niðurstöðu úr ríkisvíxlaútboðinu í gær, en umframeftirspurn hefur ekki verið jafn mikil síðan í maí á síðasta ári og vaxtakjör ríkissjóðs í útboðinu nú þau bestu sem honum hefur staðið til boða á innlendum skuldabréfamarkaði. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að fjárfestar reyndust áhugasamir um ríkisvíxlaútboðið sem haldið var hjá Lánamálum ríkisins (LR) í gær. Samkvæmt tilkynningu frá LR námu gild tilboð í víxlana, sem hafa gjalddaga þann 15. júlí næstkomandi, tæplega 18,5 milljörðum kr. að nafnvirði. Ákveðið var að taka tilboðum fyrir 10,6 milljarða kr. á 2,99% flötum vöxtum. Í síðasta víxlaútboði þar sem í boði voru víxlar til 4ra mánaða voru vextir 3,4%. Vextir hafa lækkað með hverju útboði undanfarin misseri sem er í takti við þróunina á stýrivöxtum Seðlabankans. Að svo stöddu liggja enn ekki fyrir upplýsingar um af hvaða tagi kaupendur víxlanna voru. Leiða má líkum að því að erlendir aðilar hafi verið atkvæðamiklir í útboðinu í gær líkt og að undanförnu. Þeir virðast enn sækjast í skammtímapappíra með ríkisábyrgð af þó nokkru kappi og áttu nóvemberlok um helming af þeim víxlum sem þá voru útistandandi. Fjárhæð tekinna tilboða í gærdag var mun lægri en hún hefur verið að undanförnu sem er í samræmi við áætlun LR. Fyrirhugað er að lækka fjárhæð útistandandi víxla um 12 milljarða kr. á árinu og því samfara að fjölga útgefnum flokkum og er því fyrirsjáanlegt að staða hvers flokks muni að jafnaði lækka frá því sem var. Eftir útboð gærdagsins hefur því heildarstabbi útistandandi ríkisvíxla minnkað úr 72,0 milljörðum kr. í 62,5 milljarða kr. Næstkomandi mánudag er ríkisvíxlaflokkur upp á 20,1 milljarð kr. á gjalddaga.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira