Forstjórinn bjartsýnn 13. janúar 2011 05:30 Jón Trausti forstjóri Öskju er ánægður yfir því að fjárhagslegri endurskipulagningu bílaumboðsins er lokið og horfir bjartsýnn inn í árið. Fréttablaðið/Hari
Stofnendur bílaumboðsins Öskju hafa í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar keypt 35 prósenta hlut Landsbankans í fyrirtækinu. Kaupverð er trúnaðarmál. Auk Landsbankans var samið við Íslandsbanka, Lýsingu og SP Fjármögnun. Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, segir fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins hafa tekist vel. „Við fengum mikinn stuðning frá framleiðendum. Bæði Mercedes Benz og Kia komu sérstaklega vel að málum og leystu til sín bíla sem höfðu verið pantaðir og seldu á öðrum mörkuðum,“ segir hann og bendir á að því til viðbótar hafi endurskipulagningin farið fram á sömu nótum og fjármálastofnanir bjóða lífvænlegum fyrirtækjum í dag. Ólafur Ólafsson Afkoma Öskju er í takt við samdrátt efnahagslífsins frá hruni; rekstrartekjur drógust verulega saman á árunum 2008 til og með 2010, samanlagt tap nam á árunum 2008 og 2009 um 700 milljónum króna eftir sextán milljóna króna hagnað árið 2007. Þá var bókfært eigið fé fyrirtækisins neikvætt um 418,6 milljónir króna í lok árs 2009. Jón Trausti segir afkomuna mun betri í fyrra en undangengin tvö ár, starfsfólki hafi fjölgað í 55 og líti nýhafið ár ágætlega út. - jab
Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira