Íslandsbanki eignast Jarðboranir hf. 13. janúar 2011 15:37
Sú breyting hefur orðið á eignarhaldi Jarðborana hf. að Miðengi ehf., eignarhaldsfélag Íslandsbanka, fer nú með allt hlutafé í félaginu. Breytingin á eignarhaldi kemur til í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar Íslandsbanka á Jarðborunum en sú vinna hefur staðið yfir undanfarna mánuði. Í tilkynningu segir að markmið endurskipulagningarinnar er að treysta rekstur félagsins og leggja grunn að nýjum sóknarfærum. Breytt eignarhald mun ekki hafa áhrif á daglegan rekstur Jarðborana eða þá stefnu félagsins um að vera í forystu á sínu sviði. Nú starfa um 150 manns hjá félaginu og dótturfélögum þess. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær eignarhluturinn verður settur í söluferli. Jarðboranir hafa um árabil borað eftir jarðhita og gasi víða um heim jafnhliða því að sinna verkefnum á Íslandi, en það er sá grunnur sem félagið hefur byggt á. Þannig hefur fyrirtækið flutt út íslenskt hugvit og reynslu og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar á sínu sviði. Samstæða Jarðborana samanstendur auk móðurfélagsins af Jarðborunum innanlands, Iceland Drilling Azores Lda og Hekla Energy GmbH. „Það er ánægjulegt að hafa lokið fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Jarðboranir hafa gegnt lykilhlutverki í nýtingu jarðvarma á Íslandi og víða erlendis. Ljóst er að sú þekking, reynsla og tækjabúnaður sem félagið býr yfir mun nýtast viðskiptavinum okkar vel í framtíðinni við uppbyggingu, öflun og nýtingu jarðvarma," segir Bent S. Einarsson, forstjóri Jarðborana. Nýja stjórn Jarðborana hf. skipa: Geir A. Gunnlaugsson, Gunnar Guðni Tómasson, Hrafn Magnússon, Kirstín Flygenring og Sigrún Elsa Smáradóttir.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira