Spáir 0,5 prósentustiga vaxtalækkun í febrúar 13. janúar 2011 11:56
Greining Íslandsbanka reiknar með því að Peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum sem er 2. febrúar næstkomandi. Lækka vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana og hámarksvextir innistæðubréfa við þetta í 3,0% og 3,75% hvor um sig, vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 4,0% og daglánavextir í 5,0%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að síðasta vaxtaákvörðun Peningastefnunefndarinnar var 8. desember síðastliðinn og lækkaði nefndin þá vexti á viðskiptareikningum innlánsstofnanna um 0,5 prósentur og vexti á viðskiptareikningum innlánsstofnana og hámarksvexti innistæðubréfa um eina prósentu. Þá lækkaði bankinn daglánavexti um 1,5 prósentur. Aðgerðin var hvorutveggja til að draga úr peningalegu aðhaldi og til að þrengja vaxtaganginn. Í yfirlýsingu nefndarinnar vegna ákvörðunarinnar segir að hún telur að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til frekari slökunar peningalegs aðhalds haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólgan eins og spáð er. Hún gerir þó þann fyrirvara að óvissa sé um hversu svigrúmið er mikið til skemmri tíma vegna áforma um afnám hafta á fjármagnshreyfingar. Gengi krónunnar hefur lækkað aðeins frá vaxtaákvörðuninni í desember. Hefur gengisvísitalan á þessum tíma farið úr 205,3 í 209,3 sem samsvarar ríflega 1,9% veikingu. Gengi krónunnar hefur hins vegar haldist nokkuð stöðugt gagnvart evrunni en hún hefur kostað um 151 krónu frá síðustu vaxtaákvörðun. Millibankamarkaðurinn með gjaldeyri hér á landi ákvarðar krossinn á milli evru og krónu. Hreyfingin í gengisvísitölunni er hins vegar til komin vegna hreyfingar í gengi evru gagnvart dollaranum en evran hefur verið að lækka nokkuð á alþjóðamörkuðum vegna erfiðleika í fjármálum einstakra ríkja innan evrusvæðisins. Kaup Seðlabankans á gjaldeyri hafa haft lítil áhrif á gengi krónunnar þó að þau hafi verið talsverð. Kaup þessi, ásamt því að nú er fjórða endurskoðun efnahagsáætlunar Aljóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda í höfn, hefur styrkt gjaldeyrisforðann, dregið úr endurfjármögnunaráhættu ríkissjóðs og þannig rennt stoðum undir gengi krónunnar. Þessu til viðbótar styðja gjaldeyrishöftin, afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd og munur innlendra og erlendra vaxta við krónuna. Frá síðustu vaxtaákvörðun hefur verðbólgan farið úr 2,6% í 2,5%. Verðbólgumarkmið Seðlabankans er þar með í höfn en hækkun vísitölu neysluverðs á milli nóvember og desember var í lægri kanti þess sem spáð var. Verðbólgan á fjórða fjórðungi síðasta árs var nokkru minni en Seðlabankinn spáði. Reiknum við auk þess með því að verðbólgan verði í námunda við 2,5% markmið Seðlabankans á þessu ári.
Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira