Lánasafnið kostaði Landsbankann 121 milljarð 13. janúar 2011 15:48 Landsbankinn í Lúxemborg.
Heildarupphæðin, sem Landsbankinn borgaði til þess að kaupa lánasafnið af Landsbankanum í Lúxemborg, sem er til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara, nam um 784 milljónum evra, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Sé það umreiknað í íslenskar krónur á núverandi gengi þá lánaði bankinn þessum félögum 121 milljarð. Sérstakur saksóknari rannsakar sérstaklega Landsbankann fyrir að hafa keypt þetta lánasafn af Landsbankanum í Lúxemborg. Stærsti skuldarinn þar var Björgólfur Thor sem einn skuldaði 225,14 milljónir evra samkvæmt skýrslu Alþingis. Ekkert er minnst á Björgólf í tilkynningu sérstaks saksóknara né hefur hann verið kallaður til yfirheyrslu samkvæmt upplýsingafulltrúa hans. Öll félögin, nema Bruce Assets Limited, eru nefnd í Rannsóknarskýrslunni þar sem lánasafnið er tíundað. Engar upplýsingar eru heldur að finna á veraldarvefnum um þetta huldufélag. Í tilkynningu frá sérstökum saksóknara kemur einnig fram að lánveitingar til félaganna Hunslow S.A., Bruce Assets Limited, Pro-Invest Partners Corp og Sigurðar Bollasonar ehf. til kaupa á hlutabréfum í Landsbankanum séu til rannsóknar. Þessir aðilar, fyrir utan huldufélagið, fengu 13 milljarða að láni frá Landsbankanum. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar segir að það sé ljóst að Landsbankinn í Lúxemborg hafi að umtalsverðu leyti verið notaður til þess að fjármagna starfsemi fyrirtækja Björgólfs Thors Björgólfssonar. Þá þykja skýrsluhöfundum sérstaklega athyglisvert að stór hluti þessara skuldbindinga hafi orðið til rétt fyrir fall bankans.
Tengdar fréttir Sjö færðir í skýrslutöku - grunur um stórfellt auðgunarbrot Í tengslum við rannsóknir embættis sérstaks saksóknara á kaupum Landsbanka Íslands á hlutbréfum útgefnum af bankanum og lánveitingum bankans til hlutabréfakaupa fóru fram húsleitir á þremur stöðum í dag á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt tilkynningu frá Sérstökum saksóknara. Þar kemur fram, eins og Vísir greindi frá, að sjö manns voru á sama tíma færðir til skýrslutöku. 13. janúar 2011 15:19 Þrjár húsleitir framkvæmdar í tengslum við Landsbankann Embætti sérstaks saksóknara hefur framkvæmt þrjár húsleitir í dag sem eru tengdar rannsókn á málefnum gamla Landsbankans. 13. janúar 2011 14:50 Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Sjá meira
Sjö færðir í skýrslutöku - grunur um stórfellt auðgunarbrot Í tengslum við rannsóknir embættis sérstaks saksóknara á kaupum Landsbanka Íslands á hlutbréfum útgefnum af bankanum og lánveitingum bankans til hlutabréfakaupa fóru fram húsleitir á þremur stöðum í dag á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt tilkynningu frá Sérstökum saksóknara. Þar kemur fram, eins og Vísir greindi frá, að sjö manns voru á sama tíma færðir til skýrslutöku. 13. janúar 2011 15:19
Þrjár húsleitir framkvæmdar í tengslum við Landsbankann Embætti sérstaks saksóknara hefur framkvæmt þrjár húsleitir í dag sem eru tengdar rannsókn á málefnum gamla Landsbankans. 13. janúar 2011 14:50