Loðnuvinnsla hafin á Vopnafirði, bræla á miðunum 11. janúar 2011 14:33
Loðnuvinnsla er hafin að nýju á Vopnafirði eftir að Lundey NS kom þangað með um 680 tonn af loðnu á miðnætti í nótt. Magnús Róbertsson vinnslustjóri hjá HB Granda segir að loðnan nú sé heldur smærri en sú sem barst til vinnslu fyrir áramótin en það muni ekki miklu. Góður hluti aflans henti til frystingar en það sem flokkist frá fari til bræðslu. Greint er frá þessu á vefsíðu HB Granda. Þar segir að nú sé vika liðin frá því að Lundey NS fór til loðnuleitar í samræmi við áætlun Hafrannsóknastofnunar þar að lútandi og hófst leitin á Vestfjarðamiðum. Arnþór Hjörleifsson skipstjóri segir aðstæður til leitar hafa verið hinar verstu. ,,Við byrjuðum í Víkurálsbotninum og fórum þaðan út í kantinn en urðum ekki varir við loðnu fyrr en við komum á Halann. Þar lóðaði á loðnu og samkvæmt upplýsingum frá skipstjórum togara, sem þar voru að veiðum, var fiskurinn kjaftfullur af loðnu. Við áttum að fara norðar til að kanna svæðið þar en urðum frá að hverfa vegna hafíss og svo var veðrið snælduvitlaust eins og það er reyndar búið að vera frá áramótum og er enn," segir Arnþór en frá Vestfjarðamiðum var ferðinni heitið austur á Kolbeinseyjarsvæðið. Þar tók ekki betra við. ,,Við áttum að leita á svæðinu vestan við Kolbeinsey og fara síðan langt norður fyrir eyna en við gáfumst upp á því. Þarna var haugabræla, 20-25 m/s, og mikil ísing. Veður fór versnandi og því fórum við til hafnar á Húsavík þar sem við biðum bræluna af okkur." Lundey fór síðan til loðnuveiða sl. sunnudagsmorgun og að sögn Arnþórs var stefnan þá tekin á svæðið norður af Langanesi. ,,Við urðum varir við mikið líf á leiðinni og það vantaði a.m.k. ekki hvalina, þeir voru út um allt. Það brældi hressilega en við tókum tvö hol og í seinna skiptið toguðum við bara í um tvo tíma," segir Arnþór en að hans sögn eru nokkur skip að veiðum á þessum slóðum, á um 67°N. Reyndar hefur einnig orðið vart við loðnu sunnar og nær landi og benda fyrstu fréttir til þess að loðnan þar sé heldur stærri en sú sem skipin voru að fá norðar á veiðislóðinni.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Sjá meira