Höfum notað 136 milljarða af Norðurlandalánunum 11. janúar 2011 07:41
Ísland hefur þegar nýtt sér helming þeirra lána sem Norðurlöndin veita í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Lánin í heild nema 1.775 milljónum evra og hafa því tæplega 888 milljónir evra eða tæplega 136 milljarðar verið nýttir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum þar sem greint er frá því að framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti í gær fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS. Endurskoðanirnar eru alls sjö. Þessi afgreiðsla framkvæmdastjórnar sjóðsins felur í sér að fimmti áfangi lánafyrirgreiðslu sjóðsins er til reiðu eða 105 milljónir SDR. Það er jafnvirði um 160 milljóna Bandaríkjadala eða tæplega 19 milljarða íslenskra króna. Eftir þessa endurskoðun hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn greitt út sem nemur 980 milljónum SDR af 1,4 milljörðum SDR sem hann lánar í tengslum við áætlunina. Lánsfjárhæðin 980 milljónir SDR jafngildir tæplega 1,7 milljörðum Bandaríkjadala eða rúmlega 176 milljörðum króna. Rétt er að geta þess að ádráttartími lána frá Norðurlöndunum í tengslum við efnahagsáætlunina verður framlengdur til ársloka 2011. Það er gert með hliðsjón af töfum sem orðið hafa á upphaflegri áætlun. Helmingur heildarfjárhæðinnar, sem er 1.775 milljónir evra, hefur þegar verið nýttur, en með þessari samþykkt hefur Ísland aðgang að seinasta fjórðungi lánanna, tæplega 444 milljónum evra. Þriðji hluti þeirra var aðgengilegur strax að lokinni þriðju endurskoðun en hefur ekki verið nýttur vegna rúmrar erlendrar lausafjárstöðu Seðlabanka Íslands og ríkissjóðs. Einnig er umsamið lán frá Póllandi nú aðgengilegt að fullu en þriðjungur af heildarfjárhæðinni, sem er 630 milljónir PLN, hefur verið nýttur nú þegar, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira